Ánastaðastapi er fallegur klettadrangur í fjöruborðinu rétt norðan við bæina á Ánastöðum á vestanverðu Vatnsnesi. Fjölskrúðugt fuglalíf er við stapann en sett hefur verið upp bílaplan við veginn og liggur gönguleið niður í fjöruna við stapann.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Bílastæði er á afleggjara við skilti á vegi 711
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Ekki til staðar
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Gæti verið erfitt að ganga fjöruna í flóði en þá er hægt að ganga meðfram bakkanum. Undirlag er gras og grjótug sandfjara.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.