Gangan hefst við þjóðveginn rétt sunnan við eyðibýlið Brandagil en þar er hlið. Þarna má leggja faratækjum. Gott er að leggja öðru faratæki við leiðarenda norðan við eyðibýlið Húk í Vesturárdal, nema áætlunin sé að ganga fram og til baka.
Auðveld ganga eftir vegslóða. Viðsýn og friðsæl leið.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Bílastæði við veg 1
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Ekki til staðar
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.