Á Klömbrum er uppgert steinhús frá 1880-1885, sem er friðað og á fornminjaskrá. Þar bjó héraðslæknirinn og þar var apótek og sjúkrastofa. Ekki er vitað um nafn steinsmiðsins, en steinhús af þessari gerð eru afar sjaldgæf í sveitum landsins. Frá Káraborg er gengið eftir greinilegri slóð í austurátt. Síðan tekur við vegleysa. Þröskuldur er háls á milli Þrælsfells og Sótafells og þar er gengið niður um Ormsdalinn. Gangan endar rétt hjá bænum Klömbrum í Vesturhópi.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Lítið sandplan
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Engin salernisaðstaða eða ruslafötur.
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Undirlag er malarvegur, þúfur, grjót og ís.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.