Þrælsfell er um 895 m á hæð og þar með hæsti hnjúkur Vatnsnesfjalls. Gætið þess að hafa samráð við ábúendur á Helguhvammi áður en haldið er á faratækjum til Káraborgar.
Hægt er að aka upp að Káraborg og e.t.v. ennþá lengra til austurs eftir slóð en runnið hefur úr slóðinni og getur verið varasamt að aka þar yfir litla sprænu. Gengið er með slóðinni og svo beygt beint til norðurs. Leiðin er ekki mjög krefjandi en fjallið er þverhnípt til vesturs og varasamt í slæmu skyggni. Efst er varða og þaðan er afar víðsýnt.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Lítið sandplan
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Engin salernisaðstaða eða ruslafötur.
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Undirlag er malarvegur, þúfur, grjót og ís.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.