    <language>is</language>
Fréttir frá starfi MN | Upplifðu Norðurland
Nýtt vetrarmyndband frá Norðurlandi
Nýtt kynningarmyndband fyrir áfangastaðinn Norðurland er komið í loftið. Myndbandið dregur fram það sem gerir Norðurland að einstökum vetraráfangastað, þar sem fjölbreytt upplifun, mannlíf og landslag í vetrarbúningi fara saman.]]></description>
Mannamót 2027 - Skráning er hafin
Opnað hefur verið fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem verða haldin fimmtudaginn 28. janúar 2027 í Kórnum í Kópavog frá kl. 12–17.]]></description>
Viðurkenningar á Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi 2026
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á Norðurhjarasvæðinu í gær. Yfir daginn heimsóttu þátttakendur ferðaþjónustuaðila á svæðinu og kynntust fjölbreyttri starfsemi þeirra, sögu og nærumhverfi. Deginum lauk með hátíðarkvöldverði og skemmtun.]]></description>
Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar: Hvernig höldum við í gott fólk?
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar fara nú aftur í gang með lækkandi sól en þeir eru opnir og ókeypis fræðsluviðburðir fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.]]></description>
Markaðssókn í Ferðaþjónustu - Opinn Kynningafundur á Blönduósi
Markaðsstofa Norðurlands og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) hafa á undanförnum mánuðum unnið að verkefni sem miðar að því að byggja upp aðdráttarafl og leggja grunn að nýrri markaðssókn í ferðaþjónustu. Í verkefninu hefur verið unnið með samráðshópi hagaðila, skipuðum fulltrúum ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra, Íslandsstofu og Háskóla Íslands á Hólum.]]></description>
Vaxandi áhugi á Norðurlandi á alþjóðlegum ferðaviðburðum
Fulltrúar Markaðsstofu Norðurlands sóttu tvo alþjóðlega ferðaviðburði í september: Norræna vinnustofu í Frankfurt og ferðakaupstefnuna Vestnorden í Grænlandi. Viðburðirnir gáfu gott tækifæri til að kynna Norðurland fyrir ferðaskrifstofum frá ólíkum mörkuðum og efla tengsl við erlenda samstarfsaðila.]]></description>
Hvernig breytum við 19.500 sætum í bókanir?
Markaðsstofa Norðurlands og Íslandsstofa héldu vinnustofu fyrir samstarfsaðila Markaðsstofunnar í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 17. september síðastliðinn. Vinnustofan var haldin í tilefni af nýrri markaðsherferð Íslandsstofu og var leidd af Daða Guðjónssyni, forstöðumanni markaðssamskipta hjá Íslandsstofu, sem hluti af verkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar.]]></description>
Ferðaþjónusta til framtíðar - Vinnustofa í Hofi
Í tilefni nýrrar herferðar Íslandsstofu býður Markaðsstofa Norðurlands, í samstarfi við Íslandsstofu samstarfsfyrirtækjum til vinnustofu um Bretlandsmarkað og sölumiðað markaðsstarf. 
Íslandsstofa leiðir vinnustofuna sem hluta af verkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar og fer hún fram í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 17. september frá kl 13 til 15.]]></description>
Skráning er hafin á Uppskeruhátíð!
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi verður haldin á Norðurhjarasvæðinu fimmtudaginn 15. október næstkomandi. 
Farið verður í heimsókn til fyrirtækja og á áhugaverða staði í nágrenni Kópaskers og Raufarhafnar og lýkur dagskránni með kvöldverði og skemmtun til miðnættis]]></description>
Sólmyrkvinn 12. Ágúst - Hagnýtar upplýsingar 
Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á sólu á Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Um allt Norðurland verður umtalsverður deildarmyrkvi sem hefst um kl 16:47 og nær hámarki rétt fyrir klukkan 18.
Búast má við tímabundinni fjölgun ferðafólks, aukinni...]]></description>
Sólmyrkvinn 2026 — sjáðu himininn breytast á Norðurlandi
Að kvöldi miðvikudagsins 12. ágúst 2026 gengur tunglið fyrir sólina yfir Íslandi. Á mjórri ræmu vestast á landinu — Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Reykjanesi — hverfur dagsbirtan alveg um stutta stund. Norðurland er rétt utan þessarar ræmu, en það sem hér sést er engu að síður stórbrotið: sólin verður mjór sigð, birtan tekur á sig undarlegan og fagran blæ, og landslagið lítur um stund út eins og allt annar staður.]]></description>
Ferðaþjónustan á Norðurlandi í örum vexti
Talsverður vöxtur er í ferðaþjónustu á Norðurlandi, einkum í vetrarferðaþjónustu, og umtalsverðar fjárfestingar yfirstandandi eða í bígerð á svæðinu. Komufarþegum til Akureyrarflugvallar fjölgaði um 9,5% á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri, þá eru vísbendingar um að erlendir ferðamenn sem heimsækja Norðurland leiti sérstaklega í annars konar afþreyingu en ferðamenn sem koma um Keflavíkurflugvöll. Fjallað var um stöðu og horfur í ferðaþjónustu á Norðurlandi á ráðstefnunni „Segjum sögur af fjárfestingum“ sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir í vikunni.]]></description>
Vestnorden, Bretlandsverkefni og ný þróun mörkuðu árið 2025
Árið 2025 einkenndist af mikilli sókn fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi. Markaðsverkefnin voru stór og á sama tíma hafin vinna við nokkur stór þróunarverkefni sem ætlað er að auka samkeppnishæfni áfangastaðarins.]]></description>
Ný stjórn kjörin á aðalfundi Markaðsstofu Norðurlands 2026
Þriðjudaginn 26. maí var aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands haldinn á Múlabergi á Akureyri. Kosið var um tvö laus sæti í stjórn, eitt sæti á Norðurlandi vestra og eitt á Norðurlandi eystra. Kjörtímabilið er tvö ár. ]]></description>
Nýr verkefnastjóri markaðsmála og miðlunar
Signý Jónasdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri markaðsmála og miðlunar hjá Markaðsstofu Norðurlands, en starfið var auglýst í febrúar síðastliðnum. Verkefnastjóri vinnur í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og markaðssetningu áfangastaðarins. Hún kemur til starfa hjá MN 1. júní.]]></description>
Ný rannsókn sýnir að millilandaflug frá Akureyri hefur dregið úr svæðisbundnum ójöfnuði
Beint millilandaflug frá Akureyri hefur haft víðtæk samfélagsleg áhrif á Norður- og Austurland samkvæmt nýrri rannsókn Þórodds Bjarnasonar prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Skýrslan Samfélagsleg áhrif millilandaflugs á Norður- og Austurlandi kom út 8. maí 2026. Rannsóknin var unnin í samstarfi Háskóla Íslands og Markaðsstofu Norðurlands með stuðningi Sóknaráætlunar Norðurlands eystra, Sóknaráætlunar Austurlands og Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands.]]></description>
Segjum sögur af fjárfestingum
Í kjölfar aðalfundar er boðað til ráðstefnu sem ber titilinn „Segjum sögur af fjárfestingum.“ Ráðstefnan verður í formi erinda og einnig verður farið í heimsóknir sem tengjast málefninu. Ráðstefnan er á Múlaberg.]]></description>
Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2026
Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 26. maí 2026 kl. 11:30-12:30. Fundurinn verður haldinn á Múlabergi. Öll samstarfsfyrirtæki eru hvött til þess að mæta á fundinn og athygli er vakin á því að aðeins þau sem mæta á staðinn geta tekið þátt í kosningu til stjórnar.]]></description>
Hvernig geta ferðaþjónustufyrirtæki nýtt sér gervigreind í daglegum störfum?
‍Íslenski ferðaklasinn í samstarfi við Markaðsstofur landshlutanna bjóða ferðaþjónustufyrirtækjum á vinnustofu þar sem kastljósinu verður beint að því hvernig gervigreind getur nýst í rekstri, markaðssetningu, þjónustu og daglegu starfi.]]></description>
Er íslensk ferðaþjónusta á öruggri leið?
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar bregður sér norður yfir heiðar til Akureyrar og býður ykkur til stefnumóts um öryggismál í íslenskri ferðaþjónustu fimmtudaginn 9. apríl kl. 11:00–13:00, á Hótel Kea]]></description>