Niceair er splunkunýtt flugfélag sem hefur sig til flugs frá Akureyri og flýgur beint til Kaupmannahafnar og Tenerife fyrst um sinn.
Flogið verður tvisvar í viku til Kaupmannahafnar og einu sinni í viku til Tenerife. Vorið 2023 bætast Alicante og Dusseldorf við í leiðarkerfið.
Nýju flugleiðirnar koma til með að opna margvíslega möguleika bæði fyrir íbúa Norður- og Austurlands og erlenda ferðamenn – en ekki síður fela þær í sér fjölmörg tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
Beint flug til Akureyrar gerir ferðaþjónustufyrirtækjum hins vegar kleift að bjóða viðskiptavinum sínum nýja þjónustu, til að mynda styttri og ódýrari pakkaferðir um Norður- og Austurland, ferðir sem leggja áherslu á sérstöðu náttúru og menningar á svæðinu og ferðir með áherslu á minna troðnar slóðir og íslenskar náttúruperlur sem heimurinn á enn eftir að uppgötva.