Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kvöldsigling í Drangey

11. júní kl. 17:30-00:30

Upplýsingar um verð

16.500 - 21.900 kr. (aldurstengt)

Förum á smárútu með ökuleiðsögumanni frá Akureyri til Sauðárkróks og tökum stutt þægindastopp á Sauðárkróki fyrir siglingu. Eftir að komið er um borð í bátin sem flytur okkur út í Drangey er leiðsögn í höndum heimamanna sem gjörþekkja sögu og lífríki eyjunnar.

Reikna má með að ferðin út í Drangey taki um fjórar klukkustundir. Sjálf siglingin er þægileg, tekur 30 mín hvora leið og oftar en ekki láta hvalir og selir sjá sig á leiðinni. Eyjan er einstök náttúruperla í miðju Skagafjarðar, nálægðin við fjölbreytt fuglalífi í bjarginu er mikil og þaðan er frábært útsýni yfir allan fjörðinn. 

GPS punktar

N65° 41' 0.301" W18° 5' 8.371"

Sími