Flýtilyklar
Smámunasafn Sverris Hermannssonar
Smámunasafnið hefur þá sérstöðu að vera ekki safn einhverra ákveðinna hluta heldur allra mögulegra hluta. Hversdagslegir hlutir eru þar mitt á meðal afar óhefðbundinna hluta. Því hefur safnið stórkostlegt menningarlegt gildi fyrir okkur og komandi kynslóðir.
Í raun má segja að í safninu finnist flest það sem tengist byggingu húsa allt frá minnsta nagla til skrautlegustu gluggalista og hurðahúna. Boðið er uppá leiðsögn um safnið, leikhorn fyrir börnin, Smámunabúð með handverki og ilmandi vöfflukaffi á Kaffistofu safnsins. Eyjafjarðarsveit fann safninu stað í Sólgarði, 27 km sunnan Akureyrar. Saurbæjarkirkja, ein af 6 torfkirkjum á Íslandi er rétt við safnið og hægt er að skoða nánar.
Ath breyttan opnunartíma sumarið 2020.
Opnunartími |
Virkir dagar: |
Laugardagar: |
Sunnudagar: |
31. maí - 15. september: |
13:00-17:00 |
13:00-17:00 |
13:00-17:00 |
Einnig opið fyrir hópa eftir samkomulagi. Sími 8985468
|
Sólgarður
Smámunasafn Sverris Hermannssonar - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands