Safnahúsið á Húsavík
Á aðalhæð Safnahússins á Húsavík er sýningin Mannlíf og Náttúra - 100 ár í Þingeyjarsýslum. Í sýningunni er fléttað saman náttúrugripum og munum úr byggðasafni Þingeyinga svo úr verður einkar athyglisverð sýning þar sem gestir upplifa sterkt samspil manns og náttúru í Þingeyjarsýslum á tímabilinu 1850 til 1950. Á jarðhæðinni er svo fastasýning sjóminjasafnsins en hún var opnuð í apríl 2002. Sýningin gefur glögga mynd af þróun útgerðar og bátasmíði í Þingeyjarsýslum allt frá árabátaöldinni fram til vélbátaútgerðar. Tvær sérsýningar eru að jafnaði í húsinu, myndlist, saga, ljósmyndir eða annað áhugavert efni.
Stórigarður 17
Safnahúsið á Húsavík - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Innanlandsflug
Húsavík - Flugfélagið Ernir
Fuglaskoðun
Gentle Giants Hvalaskoðun
Náttúrulegir baðstaðir
Sjóböðin-Geosea
Bátaferðir
Salka Whale Watching
Ferðaskrifstofur
Fjallasýn
Ferðaskrifstofur
Norðursigling Hvalaskoðun
Sundlaugar
Sundlaugin Húsavík
Vetrarafþreying
Skíðasvæði Húsavíkur
Ferðaskrifstofur
Scandinavia Travel North ehf.
Dagsferðir
Húsavík Adventures ehf.
Gistiheimili
Saltvík ehf.
Aðrir
- Baughóll 31c
- 640 Húsavík
- 895-1776
- Smiðjuteigur 7
- 641 Húsavík
- 464-3940, 464-3941
- Garðarsbraut 79
- 640 Húsavík
- 898-9853
- Kaldbakur
- 640 Húsavík
- 892-1744, 862-1504, 862-1504
- Katlavellir
- 640 Húsavík
- 464-1000
- Reykjahverfi
- 641 Húsavík
- 464-3903
Náttúra
Höfðagerðissandur
Höfðagerðissandur heitir breið sandfjara milli Héðinshöfða og Eyvíkur. Höfðagerðissandur er vinsælt útivistarsvæði Tjörnesinga og Húsvíkinga og er talvalin staður fyrir göngu- og hlaupatúra. Frá fjörunni sést til Lundeyjar. Höfðagerðissandur er 5km norðan við Húsavík, keyrt er úr bænum framhjá PCC og átt að Tjörnesi og er afleggjari til vinstri þar sem er hægt að leggja bílnum.
Saga og menning
Menningarmiðstöð Þingeyinga
Menningarmiðstöð Þingeyinga annast m.a. Byggðasafn Þingeyinga, Héraðsskjalasafn Þingeyinga, Ljósmyndasafn Þingeyinga, Náttúrugripasafn Þingeyinga og Myndlistasafn Þingeyinga. Höfuðstöðvar þess eru í Safnahúsinu á Húsavík en einnig annast MÞ rekstur Byggðasafnsins að Grenjaðarstað og að Snartarstöðum við Kópasker.
Náttúra
Tjörnes
Tjörnes er smár skagi á milli Skjálfandaflóa og Öxarfjarðar. Kaupstaðurinn Húsavík stendur sunnarlega á nesinu. Úti fyrir Tjörnesi eru þrjár smáeyjar, Lundey er stærst þeirra, en hinar tvær heita Háey og Lágey.
Á vestan- og norðanverðu nesinu renna nokkur vatnsföll til sjávar en flest þeirra eru vatnslítil. Í fjörunni er mikill og stór steinn, sem borist hefur með hafís frá Grænlandi. Heitir hann Torfasteinn og er við hann tengd þjóðsaga.
Nyrst á Tjörnesi er jörðin Máná og úr landi þeirrar jarðar hafa verið byggð 2 nýbýli, Árholt og Mánárbakki. Á hinu síðarnefnda er veðurathugunarstöð og hefur verið frá því býlið byggðist 1963 en veðurathugunarstöðin var stofnsett á Máná 1956. Á Mánárbakka hefur einnig verið starfrækt rannsóknarstöð norðurljósa á vegum japanskra vísindamanna síðan 1984. Á Mánárbakka er einnig minjasafn þar sem finna má marga athyglisverða muni.
Náttúra
Húsavíkurfjall
Húsavíkurfjall er 417 metrar og er þægileg gönguleið er á fjallið frá þjóðvegi norðan Húsavíkur. Byrjað er hjá tjaldsvæðinu og gengið eftir góðum bröttum vegslóða. Fallegt útsýni yfir Húsavík og Skjálfanda. Einnig sjást eyjurnar Flatey og Lundey.
Náttúra
Botnsvatn
Botnsvatn er skammt suðaustan Húsavíkur. Það er 1,05 km² og í 130 m hæð yfir sjó. Ekið er upp úr miðjum Húsavíkurbæ, eftir Ásgarðsvegi og eftir um 3 mín akstur blasir vatnið við. Búðará fellur úr því í gegnum Húsavík til sjávar.
Hægt er að ganga hringinn kringum vatnið sem er 5,4 km langur. Einnig er hægt að ganga frá Skrúðgarði eftir merktum göngustíg upp með Búðará að Botnsvatni.
Veitingahús
Söfn
Könnunarsögusafnið
Söfn
Minjasafnið Mánárbakka
Söfn
Hvalasafnið á Húsavík
Ferðaskrifstofur
Norðursigling Hvalaskoðun
Hótel
Fosshótel Húsavík
Veitingahús
Skyndibiti
Lemon Húsavík
Kaffihús
Veitingahús
Veitingahúsið Salka
Aðrir
- Skarðaborg
- 641 Húsavík
- 892-0559
- Ásgarðsvegur 1
- 640 Húsavík
- 464-1520
- Héðinsbraut 2
- 640 Húsavík
- 464-2650
- Garðarsbraut 64
- 640 Húsavík
- 464-1040
- Reykjahverfi
- 641 Húsavík
- 464-3903
- Héðinsbraut 4
- 640 Húsavík
- 789-0808