Glaumbær í Skagafirði
Glaumbær er fornt höfuðból, og þar hafa búið miklir og ríkir höfðingjar. Sá nafntogaðasti þeirra er líklega Teitur Þorleifsson lögmaður (d. 1537). Prestar hafa setið í Glaumbæ frá árinu 1550. Í Glaumbæ er stór torfbær af norðlenskri gerð. Höfundar allra bæjarhúsanna eru ekki þekktir, en sr. Jón Hallsson (1809-94) prófastur lét reisa framhúsin og baðstofuna, sem er öftust bæjarhúsa, á árunum 1876-79.
Búið var í bænum til ársins 1947 og sama ár var hann tekinn í vörslu Þjóðminjasafnsins. Strax var ráðist í töluverðar viðgerðir á húsunum. Byggðasafn Skagfirðinga var formlega stofnað árið 1948 og hefur haft afnot af Glaumbæ síðan þá. Undanfarin ár hefur mikið verið gert við einstök hús, en eins og gengur um torfbæi þarf að halda þeim við reglulega til þess að koma í veg fyrir umfangsmiklar skemmdir.
Alls eru húsin 14 að tölu og þar af 6 í framhúsaröð. Engin útihús hafa varðveist.
Opnunartími:
1. janúar - 31. janúar Opið eftir samkomulagi
1. febrúar - 31. mars 10:00-16:00 Mán - Fös
1. apríl - 19. maí 10:00-16:00 Alla daga
20. maí - 20. september 9:00-18:00 Alla daga
21. september - 31. október 10:00-16:00 Alla daga
1. nóvember - 31. desember 10:00-16:00 Mán - Fös
Aðgangseyrir í Glaumbæ 2020:
Fullorðnir (18 ára og eldri) 1700 kr.
Hópar (6+), námsmenn, eldri borgarar og öryrkjar 1500 kr.
Börn (17 ára og yngri) frítt
Glaumbær
Glaumbær í Skagafirði - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands