Náttúrugripasafnið Ólafsfirði
Pálshús, eitt elsta hús Ólafsfjarðar, er í dag safn og menningar- og fræðslusetur staðsett við Strandgötu 4 í Ólafsfirði. Elsti hluti hússins var reistur 1892 og því er að finna mikla sögu í kringum það. Húsið dregur nafn sitt af Páli Bergssyni, sem í byrjun nítjándu aldar kláraði, ásamt konu sinni Svanhildi Jörundsdóttur, að reisa húsið í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Páll var einn aðalhvatamaðurinn að útgerðarmálum í Ólafsfirði.
Pálshús hýsir Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar og hina skemmtilegu grunnsýningu ,,Flugþrá". Þar má skoða alla íslensku fuglaflóruna ásamt því að fjallað er um flugþrá mannsins og draum hans að geta flogið. Börn hafa sérstaklega gaman af fuglasýningunni og hefur hún mikið fræðslugildi. Þá er þar einnig sýningin "Ólafsfjarðarvatn" , en Ólafsfjarðarvatn er með merkari vötnum landsins og er á minjaskrá. Síðast en ekki síst er svo sýningin " Ólafsfjarðarstofa" á efri hæð hússins. En þar er sagt frá myndun þorps í Ólafsfjarðarhorni fyrir aldamótin 1900, ásamt fleiru markverðu um Ólafsfjörð.
Hér er því um fjölbreyttar sýningar að ræða sem tengjast Ólafsfirði og mjög fróðlegt að ganga um húsið og skoða.
Að auki er í húsinu að finna glæsilegt einkasafn hjónanna Birnu Kristínar Finnsdóttur og Jóns Gunnars Sigurjónssonar ásamt því að fjölbreyttir lista viðburðir eru haldnir þar reglulega í skemmtilegum sýningarsal á neðri hæð hússins, en þar hafa margir þekktir listamenn sýnt verk sín.
Pálshús
Náttúrugripasafnið Ólafsfirði - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Sundlaugar
Sundlaugin Ólafsfirði
Matarupplifun
Vellir Svarfaðardal
Vetrarafþreying
Skíðasvæðið Skarðsdal
Dagsferðir
Ferðamálafélag Hríseyjar
Ferðaskrifstofur
Scandic Mountain Guides
Dagsferðir
Arctic Sea Tours
Gönguferðir
Top Mountaineering
Ferðaskrifstofur
Viking Heliskiing ehf.
Dagsferðir
Amazing Mountains ehf.
Gestastofur
Segull 67 Brugghús
Gistiheimili
Farfuglaheimilið á Dalvík
Sundlaugar
Sundlaugin Siglufirði
Gistiheimili
Kaffi Klara - Gistihús og veitingar
Sundlaugar
Sundlaugin Dalvík
Svefnpokagisting
Skíðasvæðið Böggvisstaðafjalli
Svefnpokagisting
Skíðasvæðið Tindaöxl
Sundlaugar
Sundlaugin Hrísey
Aðrir
- Sandskeið 14
- 620 Dalvík
- 898-3345, 466-1597
- Norðurvegur 17
- 630 Hrísey
- 898-9408
- Íþróttamiðstöðin Hóll
- 580 Siglufjörður
- 4617730, 8486997
- Skeggjabrekka
- 625 Ólafsfjörður
- 466-2611
- Böggvisbraut 6
- 620 Dalvík
- 663-8828
Náttúra
Fjaran á Dalvík
Í Dalvíkurhöfn er lítil trébrú þar sem hægt er að komast að svartri sandströnd. Hægt er að ganga að Svarfaðardalsá. Takið ykkur tíma, stoppið og fylgist með fjölbreyttu fuglalífi á leiðinni.
Náttúra
Héðinsfjörður
Héðinsfjörður er tæplega 6 km langur eyðifjörður nyrst á Tröllaskaga, á milli Hestfjalls að vestan og Hvanndalabyrðu að austan. Fyrir botni fjarðarins er ágætt veiðivatn, Héðinsfjarðarvatn, og er útrennsli úr því um Héðinsfjarðarós út í fjörðinn. Næsta byggð til vesturs er á Siglufirði og til austurs á Ólafsfirði.
Inn af fjarðarbotninum er fagur dalur, 5-6 kílómetra langur. Stórt silungsvatn, 1,7 ferkílómetrar að stærð, prýðir dalinn, 3 metra yfir sjávarmáli. Það er vatnableikja og mikil sjóbleikja í vatninu, 1-5 pund. Hún gengur í það síðla sumars.
Mikið dýralíf er við vatnið og fuglar spakir. Sögur eru til af rebba, sem hefur heimsótt veiðimenn alls óhræddur og sótt sér fisk fyrir lítið. Þetta vatn er ekki mikið stundað, en á þó sína áhangendur, sem sækjast eftir friði og góðri veiði. Veiðihús er við norðurenda vatnsins.
Næga afþreyingu er að hafa við Héðinsfjörð og á Tröllaskaga hvort sem það er að vetri til eða sumri til; skíði, snjósleðaferðir, sjóferðir, golf, fótbolti, gönguferðir, hestaferðir, veiði, söfn og margt fleira.
Náttúra
Fjaran á Ólafsfirði
Hægt er að leggja bílnum í bænum og fara í göngutúr að fallegri svartri strönd, gengið er í átt að Kleifum. Einnig er hægt að komast að ströndinni á bíl en verið viss um að leggja á afmörkuð bílastæði.
Saga og menning
Náttúrugripasafn Fjallabyggðar
Náttúrugripasafn Fjallabyggðar er fyrst og fremst fuglasafn og þykir mjög gott sem slíkt. Safnið býr yfir allflestum fuglategundum landsins, en einnig er þar að finna eggjasafn, vísi að plöntusafni, ísbjörn sem skotinn var á Grímseyjarsundi, refi í greni, geithafur, krabba og fleira.
Náttúrugripasafni Fjallabyggðar var komið upp árið 1993 og hefur vaxið stöðugt síðan. Ari Albertsson fuglaáhugamaður stoppaði upp megnið af fuglum safnsins og sá um uppsetningu þess. Þá gáfu afkomendur Jóns Sigurjónssonar og Birnu Finnsdóttur frá Ytri-Á á Kleifum safninu eggja og fuglasafn þeirra hjóna.
Safnið er opið alla daga á sumrin nema mánudaga frá kl. 14-17. Hægt er að semja um opnun utan þessa tíma fyrir hópa.
Saga og menning
Síldarminjasafn Íslands
Síldarminjasafn Íslands
Síldarminjasafn Íslands er eitt af stærstu söfnum landsins. Í þremur húsum kynnumst við síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins. Róaldsbrakki er norskt síldarhús frá 1907. Þar er flest eins og var á árum síldarævintýrisins þegar síldarfólkið bjó þar. Í Gránu er safn um sögu bræðsluiðnaðarins sem löngum var kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Í Bátahúsinu liggja bátar, stórir og smáir, við bryggjur. Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnverðlaunin 2000 og Evrópuverðlaun safna 2004, þegar það var valið besta, nýja iðnaðarsafn Evrópu.
Síldin var einn helsti örlagavaldur Íslands á 20. öld og grunnur þess að landsmenn hurfu frá áralangri fátækt og gátu byggt upp nútíma samfélag. Atburðirnir í kring um síldina voru svo mikilvægir fyrir fólkið og landið að talað var um ævintýri - síldarævintýrið. Við hverja höfn, norðanlands- og austan risu síldarbæir stórir og smáir. Siglufjörður var þeirra stærstur og frægastur. Þótt norðurlandssíldin sé fyrir löngu horfin ber staðurinn skýr merki hinna stórbrotnu atburða síldaráranna.
Opnunartímar eru sem hér segir:
Maí og september: 13 - 17
Júní, júlí og ágúst: 10 - 18
Vetur: Eftir samkomulagi
Siglufjörður er aðeins í klukkustundar akstursfjarlægð frá Akureyri!
Gestastofur
Segull 67 Brugghús
Söfn
Hús Hákarla-Jörundar
Söfn
Byggðasafnið Hvoll
Söfn
Holt - Hús Öldu Halldórsdóttur
Gistiheimili
Kaffi Klara - Gistihús og veitingar
Söfn
Síldarminjasafn Íslands
Setur og menningarhús
Menningarhúsið Berg
Aðrir
- Túngata 5
- 580 Siglufjörður
- 865-6543
- Norðurgata 7b
- 580 Siglufjörður
- Aðalgata 13
- 625 Ólafsfjörður
- 853-8020, 466-2188
- Norðurgata 1
- 580 Siglufjörður
- 467-2300
Veitingahús
Hannes Boy
Setur og menningarhús
Menningarhúsið Berg
Veitingahús
Verbúðin 66
Gestastofur
Segull 67 Brugghús
Kaffihús
Frida súkkulaðikaffihús
Svefnpokagisting
Skíðasvæðið Böggvisstaðafjalli
Hótel
Hótel Siglunes
Veitingahús
Torgið
Kaffihús
Gísli, Eiríkur, Helgi - Kaffihús
Upplýsingamiðstöðvar
Upplýsingamiðstöð Fjallabyggðar - Ólafsfirði (Svæðismiðstöð)
Kaffihús
Kaffi Rauðka
Hótel
Brimnes Bústaðir
Upplýsingamiðstöðvar
Upplýsingamiðstöð Fjallabyggðar, Siglufirði
Gistiheimili
Kaffi Klara - Gistihús og veitingar
Matarupplifun
Vellir Svarfaðardal
Kaffihús
Aðrir
- Goðabraut
- 620 Dalvík
- 823-8616
- Goðabraut 3
- 620 Dalvík
- 466-1213, 847-8846
- Bylgjubyggð 2
- 625 Ólafsfjörður
- 466-2272
- Tjarnargata 6
- 580 Siglufjörður
- 467-1415
- Gránugata 5b
- 580 Siglufjörður
- 8541236
- Hafnargata 16
- 625 Ólafsfjörður
- 466-4000, 868-7788
- Goðabraut
- 620 Dalvík
- 8681202
- Hafnarbraut 21
- 620 Dalvík
- 466-1559
- Skíðabraut 21
- 620 Dalvík
- 466-1832