Tjaldsvæðið á Siglufirði
Tjaldsvæði Siglufjarðar er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna göngufæri. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í hesthúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ frá svæðinu við snjóflóðavarnargarðinn.
Verð 2019
Verð á mann: 1.300 kr.
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 1.100 kr.
Frítt fyrir 16 ára og yngri.
Gistináttagjald: 300 kr.
Rafmagn: 1.000 kr.
Þvottavél og þurrkari: 900 kr. pr. skipti

Gránugata 24
Tjaldsvæðið á Siglufirði - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Sundlaugar
Sundlaugin Siglufirði
Ferðaskipuleggjendur
Amazing Mountains ehf.
Gestastofur
Segull 67 Brugghús
Gönguferðir
Top Mountaineering
Svefnpokagisting
Skíðasvæðið Tindaöxl
Vetrar afþreying
Skíðasvæðið Skarðsdal
Sundlaugar
Sundlaugin Ólafsfirði
Aðrir
- Skeggjabrekka
- 625 Ólafsfjörður
- 466-2611
- Brúnastaðir, Fljót
- 570 Fljót
- 467-1020, 869-1024
- Íþróttamiðstöðin Hóll
- 580 Siglufjörður
- 846-2576
Saga og menning
Síldarminjasafn Íslands
Síldarminjasafnið er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum húsum eru síldveiðar kynntar og vinnsla á silfri hafsins. Í Bátahúsinu liggja skip og bátar við bryggjur þar sem hafnarstemningin frá því um 1950 er endursköpuð.
Á góðum sumardögum er þar sýnd síldarsöltun, harmonikan þanin og slegið er upp bryggjuballi. Í Gránu er safn um sögu bræðsluiðnaðarins sem löngum hefur verið kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Þar hefur verið komið upp lítilli síldarverksmiðju frá 1935-40.
Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu safnsins, www.sild.is
Saga og menning
Náttúrugripasafn Fjallabyggðar
Náttúrugripasafn Fjallabyggðar er fyrst og fremst fuglasafn og þykir mjög gott sem slíkt. Safnið býr yfir allflestum fuglategundum landsins, en einnig er þar að finna eggjasafn, vísi að plöntusafni, ísbjörn sem skotinn var á Grímseyjarsundi, refi í greni, geithafur, krabba og fleira.
Náttúrugripasafni Fjallabyggðar var komið upp árið 1993 og hefur vaxið stöðugt síðan. Ari Albertsson fuglaáhugamaður stoppaði upp megnið af fuglum safnsins og sá um uppsetningu þess. Þá gáfu afkomendur Jóns Sigurjónssonar og Birnu Finnsdóttur frá Ytri-Á á Kleifum safninu eggja og fuglasafn þeirra hjóna.
Safnið er opið alla daga á sumrin nema mánudaga frá kl. 14-17. Hægt er að semja um opnun utan þessa tíma fyrir hópa.
Náttúra
Héðinsfjörður
Héðinsfjörður er tæplega 6 km langur eyðifjörður nyrst á Tröllaskaga, á milli Hestfjalls að vestan og Hvanndalabyrðu að austan. Fyrir botni fjarðarins er ágætt veiðivatn, Héðinsfjarðarvatn, og er útrennsli úr því um Héðinsfjarðarós út í fjörðinn. Næsta byggð til vesturs er á Siglufirði og til austurs á Ólafsfirði.
Inn af fjarðarbotninum er fagur dalur, 5-6 kílómetra langur. Stórt silungsvatn, 1,7 ferkílómetrar að stærð, prýðir dalinn, 3 metra yfir sjávarmáli. Það er vatnableikja og mikil sjóbleikja í vatninu, 1-5 pund. Hún gengur í það síðla sumars.
Mikið dýralíf er við vatnið og fuglar spakir. Sögur eru til af rebba, sem hefur heimsótt veiðimenn alls óhræddur og sótt sér fisk fyrir lítið. Þetta vatn er ekki mikið stundað, en á þó sína áhangendur, sem sækjast eftir friði og góðri veiði. Veiðihús er við norðurenda vatnsins.
Næga afþreyingu er að hafa við Héðinsfjörð og á Tröllaskaga hvort sem það er að vetri til eða sumri til; skíði, snjósleðaferðir, sjóferðir, golf, fótbolti, gönguferðir, hestaferðir, veiði, söfn og margt fleira.
Söfn
Síldarminjasafn Íslands
Söfn
Náttúrugripasafnið Ólafsfirði
Gestastofur
Segull 67 Brugghús
Aðrir
- Norðurgata 7b
- 580 Siglufjörður
- Túngata 5
- 580 Siglufjörður
- 865-6543
- Norðurgata 1
- 580 Siglufjörður
- 467-2300
- Eyrargata 3
- 580 Siglufjörður
- Gránugata 24, Ráðhúsið
- 580 Siglufjörður
- 464-9120
- Aðalgata 14
- 625 Ólafsfjörður
- 466-2651, 848-4071
- Aðalgata 13
- 625 Ólafsfjörður
- 853-8020, 466-2188
- Ægisgata 10
- 625 Ólafsfjörður
Hótel
Hótel Siglunes
Hótel
Brimnes Hótel
Upplýsingamiðstöðvar
Upplýsingamiðstöð Fjallabyggðar - Ólafsfirði (Svæðismiðstöð)
Kaffihús
Frida súkkulaðikaffihús
Upplýsingamiðstöðvar
Upplýsingamiðstöð ferðamála í Fjallabyggð - Siglufjörður (Svæðismiðstöð)
Veitingahús
Hannes Boy
Kaffihús
Kaffi Rauðka
Kaffihús
Kaffi Klara - Arctic Coast Tastes
Gestastofur
Segull 67 Brugghús
Kaffihús
Veitingahús
Torgið
Aðrir
- Gránugata 5b
- 580 Siglufjörður
- 659-4809
- Bylgjubyggð 2
- 625 Ólafsfjörður
- 466-2272
- Aðalgata 30
- 580 Siglufjörður
- 467-1111
- Tjarnargata 6
- 580 Siglufjörður
- 467-1415
- Hafnargata 16
- 625 Ólafsfjörður
- 466-4000, 868-7788