Höfði er klettatangi sem gengur út í Mývatn. Útsýni er allgott af Höfðanum yfir Mývatn, voga þess og víkur og er kjörinn staður til fuglaskoðunar. Kálfastrandarvogur liggur meðfram Höfðanum og er sérstæður fyrir hraundrangamyndanir í voginum og við hann. Þessir drangar heita Klasar og Kálfastrandarstrípar en Kálfastrandarvogur og umhverfi Höfða þykir með fegurstu stöðum við Mývatn.
| Ferðaþjónusta bænda Skútustöðum | Mývatnssveit | 660 Mývatn | 464-4212 |
| Kaffi Borgir | Dimmuborgir | 660 Mývatn | 662-4748 |
| Safarihestar | Álftagerði 3 | 660 Mývatn | 864-1121 |
| Skútaís - Heimaafurð úr Mývatnssveit | Skútustaðir 2b | 660 Mývatn | - |