Tjaldsvæðið á Húsavík er staðsett í göngufæri frá miðbæ Húsavíkur, sundlaug, verslunum og veitingastöðum. Tjaldsvæðið er góður kostur fyrir þá sem vilja njóta þjónustunnar í bænum og eiga jafnframt greiðan aðgang að helstu afþreyingu og náttúruperlum á Norðausturlandi.
Á tjaldsvæðinu er aðstaða fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla. Gestir hafa aðgang að salernum, sturtum, þvottavél, þurrkara og ókeypis Wi-Fi.
Húsavík er þekkt sem höfuðborg hvalaskoðunar á Íslandi og þaðan eru daglegar siglingar út á Skjálfandaflóa. Í nágrenninu eru einnig áhugaverð söfn, veitingastaðir og vinsælir áfangastaðir eins og Goðafoss, Ásbyrgi og Mývatn í þægilegri akstursfjarlægð.
Verð sumar 2026:
Fullorðnir: 2.200kr á mann á nótt (Mærudagar 23.-25.júlí 3.900kr á mann nóttin)
Öryrkjar og eldri borgarar: 1.600kr á mann á nótt
Börn: Frítt fyrir 14 ára og yngri
Rafmagn: 1.500kr á dag
Þvottavél: 800kr
Þurrkari: 800kr
Gistináttagjald: 400kr