Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynning á söguverkefni

Markaðsstofa Norðurlands verður á ferðinni í Húnavatnssýslum og Skagafirði fimmtudaginn 9. febrúar til að kynna og fara yfir verkefni sem tengjast söguferðaþjónustu á svæðinu.

Farið verður yfir hugmyndir sem Markaðsstofan hefur sett upp en jafnframt verður tíminn nýttur í spjall með einstaklingum á svæðinu um það hvernig þeir sjá framhaldið fyrir sér, svo sérstaða svæðisins megi nýtast sem best í frekari uppbyggingu til framtíðar.
Rætt verður um tækifæri í vöruþróun og línurnar lagðar fyrir framhaldið.

Haldnir verða tveir klukkutíma langir fundir, annars vegar í Kakalaskála kl. 13:00 og hins vegar á Hótel Laugarbakka kl. 17:00.

Ég mæti á fundinn: