Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Straumhvörf er nýtt vöruþróunarverkefni í ferðaþjónustu sem nær yfir allt Norður- og Austurland og er ætlað fyrirtækjum í ferðaþjónustu og fulltrúum sveitarfélaga. Tilgangurinn er að nýta tækifæri sem felast í auknu millilandaflugi til Norður- og Austurlands og búa til nýjar vörur og vörupakka í ferðaþjónustu. Að verkefninu standa Austurbrú/SSA, Markaðsstofa Norðurlands, SSNV og SSNE.

Skipulag funda og vinnustofa

Undirbúningsfundur á Teams 12. október kl. 10:00, þar sem verkefnið verður kynnt og þátttakendur undirbúnir fyrir næstu skref.
Kynningarfundurinn 12. október er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig á hann.

Vinnustofur verða á fjórum stöðum þar sem þátttakendur fá fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við vöruþróun:
1. Hótel Blönduós, 30. október kl. 12:00-17:00
2. Hótel Natur, Eyjafirði, 31. október kl. 12:00-17:00
3. Gamla skólahúsinu, Bakkafirði, 1. nóvember kl. 12:00-17:00
4. Sláturhúsinu - menningarmiðstöð, Egilsstöðum, 2. nóvember kl. 10:00-15:00

 
Eftirfylgnifundir á Teams síðar í nóvember. Efnistök ráðast af niðurstöðum úr vinnustofum.

Þátttakendum gefst tækifæri á að kynna tilbúnar vörur í Ferðaþjónustuvikunni í janúar.

Við hvetjum öll sem starfa í ferðaþjónustu til að taka þátt og nýta tækifærið til að efla ferðaþjónustu í sínu nærumhverfi.

Nauðsynlegt er að skrá sig á vinnustofurnar sjálfar og skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja að þau séu aðilar að Markaðsstofu Norðurlands eða Austurbrú. Gjaldið er kr. 5.500 fyrir hvern þátttakanda og eru innifaldar veitingar á meðan á vinnustofu stendur.

Nánari upplýsingar veita Hjalti Páll Þórarinsson hjá Markaðsstofu Norðurlands, hjalti@nordurland.is og Urður Gunnarsdóttir hjá Austurbrú, urdur@austurbru.is

Upptaka frá kynningarfundi