Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Í apríl er allra veðra von. Það má enn búast við kulda og dimmviðri en dagarnir geta líka verið bjartir og sólríkir, jafnvel hlýir. Í apríl er enn hægt að fara í snjósleðaferðir og hvalaskoðunartímabilið er hafið fyrir norðan. Í þessum mánuði er oft hægt að blanda saman sumar-og vetrarafþreyingu. 
Sumardagurinn fyrsti er seinni partinn í apríl og lundinn fer að koma til landsins.

Veðurfar

Hiti 2°C / 35.6F

Meðaltal - efri mörk 5°C / 41F

Meðaltal - neðri mörk -2°C / 28.4F

Úrkoma 29mm/dag

Snjódagar 6

Tímar af dagsbirtu 15

Hvað þarf ég að taka með? 

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

 

Apríl er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði