Þjóðerni erlendra gesta
Þegar hlutfallsleg skipting gistinátta erlendra gesta á Norðurlandi öllu árið 2024 er skoðuð eftir þjóðerni, kemur í ljós að gestir frá 12 þjóðlöndum standa að baki tæpum 83% allra skráðra gistinátta. Á árinu 2024 voru Bandaríkjamenn skráðir með flestar gistinætur, eða alls 161.494, eða ríflega 19% allra skráðra gistinátta. Þjóðverjar voru skráðir með tæp 17% (141.100) og Frakkar með ríflega 9% (78.043).
ATH. Þegar skífuritið hér að neðan er skoðað er mælt með því að opna það á heilum skjá. Það er gert með því að smella á hnappinn efst í hægra horni myndarinnar og velja "allur skjárinn".
| Þjóðerni gesta | Fjöldi gistinátta | Hlutfall |
| Bandaríkin | 161.494 | 19,3% |
| Þýskaland | 141.100 | 16,8% |
| Frakkland | 78.043 | 9,3% |
| Ítalía | 56.003 | 6,7% |
| Holland | 50.704 | 6,1% |
| Bretland | 45.584 | 5,4% |
| Spánn | 45.087 | 5,4% |
| Sviss | 34.320 | 4,1% |
| Kanada | 21.915 | 2,6% |
| Kína | 21.798 | 2,6% |
| Austurríki | 20.982 | 2,5% |
| Pólland | 19.128 | 2,3% |
| Önnur þjóðlönd | 141.764 | 16,9% |
Ekki er teljandi munur á vægi mismunandi þjóðlanda þegar litið er til Norðurlands vestra annars vegar og Norðurlands eystra hins vegar, eins og sjá má í töflunni hér að neðan. Þó eru Þjóðverjar hlutfallslega stærri hópur á Norðurlandi vestra en á Norðurlandi eystra og að sama skapi Bandaríkjamenn nokkru minni hópur hlutfallslega á Norðurlandi vestra en á Norðurlandi eystra.
| Norðurland allt | Norðurland vestra | Norðurland eystra | ||||||
| Þjóðerni gesta | Fjöldi gistinátta | Hlutfall | Þjóðerni gesta | Fjöldi gistinátta | Hlutfall | Þjóðerni gesta | Fjöldi gistinátta | Hlutfall |
| Bandaríkin | 161.494 | 19,3% | Þýskaland | 28.439 | 20,8% | Bandaríkin | 139.025 | 19,8% |
| Þýskaland | 141.100 | 16,8% | Bandaríkin | 22.469 | 16,5% | Þýskaland | 112.661 | 16,1% |
| Frakkland | 78.043 | 9,3% | Frakkland | 14.430 | 10,6% | Frakkland | 63.613 | 9,1% |
| Ítalía | 56.003 | 6,7% | Ítalía | 9.976 | 7,3% | Ítalía | 46.027 | 6,6% |
| Holland | 50.704 | 6,1% | Holland | 8.419 | 6,2% | Holland | 42.285 | 6,0% |
| Bretland | 45.584 | 5,4% | Spánn | 7.105 | 5,2% | Bretland | 39.882 | 5,7% |
| Spánn | 45.087 | 5,4% | Sviss | 6.089 | 4,5% | Spánn | 37.982 | 5,4% |
| Sviss | 34.320 | 4,1% | Bretland | 5.702 | 4,2% | Sviss | 28.231 | 4,0% |
| Kanada | 21.915 | 2,6% | Pólland | 3.669 | 2,7% | Kína | 19.642 | 2,8% |
| Kína | 21.798 | 2,6% | Kanada | 3.529 | 2,6% | Austurríki | 18.485 | 2,6% |
| Austurríki | 20.982 | 2,5% | Austurríki | 2.497 | 1,8% | Kanada | 18.386 | 2,6% |
| Pólland | 19.128 | 2,3% | Belgía | 2.490 | 1,8% | Pólland | 15.459 | 2,2% |
| Önnur þjóðlönd | 141.764 | 16,9% | Önnur þjóðlönd | 21.730 | 15,9% | Önnur þjóðlönd | 119.700 | 17,1% |
Myndin hér að neðan sýnir þróun gistináttafjölda erlendra gesta eftir þjóðernum 2017-2023. Hér má sjá að gistinætur gesta frá flestum landanna hafa náð sama fjölda á árinu 2023 og 2019, þ.e. náð sama fjölda og árið fyrir heimsfaraldur. Aðeins í tilfelli Bandaríkjamanna og Breta eru gistinætur færri árið 2023, en árið 2019.