Fara í efni

Sögu- og menningartengdir staðir

Norðurland er þekkt fyrir merkilega sögu og fjölbreytta menningu. Á Norðurlandi eru fjölmörg söfn og fræðasetur sem mörg hver hafa vakið verðskuldaða athygli bæði innanlands og erlendis. Sem dæmi má nefna söfn eins og Síldarminjasafnið á Siglufirði, Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi, Byggðasafnið Hvoll á Dalvík, Hvalasafnið á Húsavík, Vesturfarasetrið á Hofsósi, Nonnahús á Akureyri auk fjölda byggðasafna og listasafna. Öll eru söfnin óþrjótandi uppspretta fróðleiks, fegurðar og skemmtunar.

Sjá nánari umfjöllun um valda sögu og menningartengda staði á Norðurlandi hér.