Fara í efni

Náttúrustaðir

Mikilfengleg náttúra Norðurlands skilur engan eftir ósnortinn. Þar er að finna stórkostleg gljúfur eins og Jökulsárgljúfur, klettadranga við strendur svo sem Hvítserk og Stórakarl, ummerki eftir eldsumbrot í Mývatnssveit og staði á borð Ásbyrgi sem myndaðist við jökulhlaup fyrir þúsundum ára. Fossarnir eru margir og ber fyrst að nefna aflmesta foss Evrópu, Dettifoss, hinn sögufræga Goðafoss og hinn eftirminnilega Aldeyjarfoss. Fjöllin umkringja allt og göngufólk getur fundið sér gönguleiðir af fjölbreyttum toga og við allra hæfi.

Sjá nánari umfjöllun um valda náttúrustaði á Norðurlandi hér.