Fara í efni

Skráðar gistinætur á Norðurlandi: Fjöldi og þróun

Taflan hér að neðan sýnir þróun fjölda skráðra gistinátta, á árunum 2017-2025, á Norðurlandi öllu, en einnig á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Heildarfjöldi skráðra gistinátta á árinu 2025 var 1.235.243, þar af voru 1.044.942 á Norðurlandi eystra (84,6%) og 190.301 á Norðurlandi vestra (15,4%).

 

 

 

 

 


Ef skoðuð er þróun fjölda gistinátta á Norðurlandi frá síðustu aldamótum, í samanburði við aðra landhluta, þá má sjá að vöxtur ferðaþjónustu á Norðurlandi hefur ekki verið eins hraður og á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Staðan á Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra er þó um margt ólík. Um síðustu aldamót var ferðaþjónusta á Norðurlandi eystra þegar orðin rótgróin atvinnugrein með umtalsverð umsvif, eða ríflega 16% af öllum skráðum gistinóttum í landinu. Hlutafall Norðurlands eystra var hins vegar tæp 11% á árinu 2025. Vöxtur fjölda gistinátta á Norðurlandi vestra er hægur í samanburði við aðra landshluta. Hlutdeild Norðurlands vestra í heildargistináttafjölda á landinu fór úr tæpum 4% niður í tæp 2% á umræddu tímabili.