Fara í efni

Þjóðerni erlendra gesta

 

Gestir frá aðeins níu þjóðlöndum standa að baka þremur fjórðu allra gistinátta erlendra gesta á Norðurlandi, á árinu 2025. Skráðar gistinætur Bandaríkjamanna voru flestar, eða alls 167.273, eða um 19% allra skráðra gistinátta erlendra gesta. Þjóðverjar voru skráðir með tæp 17% (145.695) og Frakkar með tæp 9% (76.983). 

ATH. Þegar skífuritið hér að neðan er skoðað er mælt með því að opna það á heilum skjá. Það er gert með því að smella á hnappinn efst í hægra horni myndarinnar og velja "allur skjárinn".

Þjóðerni gesta: 2025 Fjöldi gistinátta Hlutfall
 Bandaríkin 167.273 18,8%
 Þýskaland 145.695 16,5%
 Frakkland 76.983 8,6%
 Ítalía 62.592 7,0%
 Spánn 53.942 6,1%
 Bretland 48.992 5,5%
 Holland 45.501 5,1%
 Sviss 35.654 4,0%
 Kína 30.969 3,5%
 Önnur Asíulönd 27.991 3,1%
 Kanada 24.390 2,7%
 Pólland 24.254 2.7%
 Önnur þjóðlönd 146.252 16,4%

 

 

 

Myndin hér að neðan sýnir þróun gistináttafjölda erlendra gesta eftir þjóðernum 2017-2025. Aðeins eru skoðaðir fjölmennustu hóparnir. Hér má sjá að gistinætur gesta frá flestum landanna hafa náð sama fjölda á árinu 2023 og 2019, þ.e. náð sama fjölda og árið fyrir heimsfaraldur. Aðeins í tilfelli Bandaríkjamanna, Breta og Kínverja eru gistinætur færri árið 2023, en árið 2019 og er sú staða enn uppi ef horft er til áranna 2024 og 2025. Ef þróunin á síðustu tveimur árum tímabilsins, þ.e. 2023-2025, er skoðuð, má sjá að gestum frá meirihluta þjóðlandanna fjölgar. Ítölum, Spánverjum og Pólverjum fjölgar hlutfallslega mest af Evrópuþjóðunum. Einnig fjölgar Kanadamönnum umtæp 17% á tímabilinu.