Fara í efni

Samstaða um sjálfbæra ferðaþjónustu

Áfangastaðaáætlun Norðurlands hefur sjálfbærni að leiðarljósi, sem er í takt við núgildandi Ferðamálastefnu Íslands. Í Framtíðarsýn og leiðarljósi íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 kemur m.a. fram að ferðaþjónustan eigi að vera arðsöm og samkeppnishæf í sátt við land og þjóð og að Ísland eigi að vera leiðandi í sjálfbærri þróun. Leiðin að því marki er að setja arðsemi framar fjölda ferðamanna, vinna að ávinningi heimamanna af ferðaþjónustu um allt land, gæta jafnvægis milli verndar og hagnýtingar og miða að einstakri upplifun, gæðum og fagmennsku. 

Skýringarmynd sem sýnir Framtíðarsýn í ferðaþjónustu og tengsl hennar við sjálfbæra þróun. Hægt er að smella á hlekk neðan við hana til að kynna sér aðgerðaáætlunina nánar.

Frekari upplýsingar um stefnumótun hins opinbera um sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu má nálgast hér:

Íslensk ferðaþjónusta til 2030 - Sjálfbær þróun         Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til 2030

 

Áherslur Markaðsstofu Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands hefur síðan 2022 unnið að ýmsum verkefnum sem hafa það að markmiði að hvetja til aukinnar vitundar um sjálfbærni í ferðaþjónustu. Í kjölfar  greiningarvinnu sem unnin var með aðkomu Kontiki ráðgjafafyrirtækisins (sjá samantekt hér) var ákveðið að leggja höfuðáherslu á samfélags- og hagræna þætti í áframhaldandi umræðu um viðfangsefnið.

Í þessari vinnu voru dregnar út tvær megináherslur:

1) Aukinn hagur heimamanna (benefits local communities)

2) Auknar heilsárstekjur (increases local creation, all year round).

Mörg ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi hafa tileinkað sér gildi sjálfbærar þróunar. Þau eiga það sameiginlegt að hafa innleitt áherslur og/eða verkefni sem eru til þess fallin að efla sjálfbærni, m.a. með bættan hag nærsamfélagsins að leiðarljósi. MN hefur tekið saman frásagnir af starfi nokkurra þessara fyrirtækja. Tilgangur þessa er m.a. að auka vitund forsvarsaðila annarra ferðaþjónustufyrirtækja um sjálfbærni og hvetja þá til góðra verka. Nánari upplýsingar um þessar frásagnir og meðfylgjandi myndefni má nálgast HÉR