Uppbygging áfangastaða
Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að byggja upp og viðhalda góðum áfangastað. Hér finnur þú upplýsingar og gagnlegt efni fyrir sveitarfélög, landeigendur og aðra sem koma að uppbyggingu áfangastaða.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
|
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða um land allt og styðja með því við þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar stoðar í íslensku atvinnulífi. Það er jafnframt markmið sjóðsins að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun. Styrkt verkefni verða að efla öryggi ferðamanna eða stuðla að náttúruvernd á ferðamannastöðum. Sjóðurinn getur styrkt allt frá undirbúnings- og hönnunarvinnu til framkvæmda og viðhalds. Rík krafa er á að umsóknir séu vel ígrundaðar og vandaðar, enda er um samkeppnissjóð að ræða. Umsóknarfrestur er að hausti ár hvert og úthlutun fer fram að vori. |
![]() |
Við mat á umsóknum er meðal annars horft til:
- Tengingar við áfangastaðaáætlun.
- Samræmis við svæðisbundna forgansröðun.
- Áhrifa á öryggi, verndun og aðgengi.
Verkefni sem eru skilgreind í áfangastaðaáætlun fá aukið vægi í stigagjöf sjóðsins, sem undirstrikar mikilvægi þess að vinna uppbyggingu í samræmi við sameiginlega stefnu svæðisins.
Upplýsingar um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Landsáætlun um innviði
|
Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjun er tólf ára áætlun á vegum Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis. Framkvæmdaáætlun er sett fram á hverju ári til þriggja ára í senn. Hún nær til áfangastaða sem flestir heyra undir þjóðgarða, Náttúruverndarstofnun eða Minjastofnun. Stöku staðir á Landsáætlun eru í umsjá annarra aðila, á borð við Skógræktina eða Þjóðminjasafn Íslands. Fjármögnun tengd landsáætlun beinist því fyrst og fremst að:
|
![]() |
Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjun er tólf ára áætlun á vegum Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis. Framkvæmdaáætlun er sett fram á hverju ári til þriggja ára í senn. Hún nær til áfangastaða sem flestir heyra undir þjóðgarða, Náttúruverndarstofnun eða Minjastofnun. Stöku staðir á Landsáætlun eru í umsjá annarra aðila, á borð við Skógræktina eða Þjóðminjasafn Íslands. Fjármögnun tengd landsáætlun beinist því fyrst og fremst að:
- Sveitarfélögum.
- Ríkisstofnunum og öðrum opinberum aðilum.
- Öðrum umsjónaraðilum ferðamannastaða.
Verkefni sem falla að áherslum landsáætlunar og byggja á svæðisbundinni forgangsröðun standa almennt sterkari í samkeppni um fjármagn.
Upplýsingasíða um Landsáætlun um innviði
Leiðbeiningar og framkvæmd
Við uppbyggingu áfangastaða er mikilvægt að styðjast við viðurkennd verkfæri og leiðbeiningar. Þar má sérstaklega nefna:
|
![]() |
Annað gagnlegt efni
Leiðbeiningar um uppbyggingu ferðamannastaðaFerðamannastaðir frá hugmynd til framkvæmdar – skipulag og leyfisveitingar Góðir staðir – uppbygging ferðamannastaða Góðar leiðir – leiðbeiningar um gerð náttúrustíga Merkingar og leiðbeiningakerfiVegrún – merkingar á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðum Skiltahandbók Skógræktarinnar Skipulag, hönnun og stefnumótunHönnun í norrænni náttúru Menningarstefna í mannvirkjagerð |
Lög og réttindiUpplýsingarit fyrir sveitarfélög er varða hlutverk og skyldur skv. náttúruverndarlögum. Almannaréttur – Umhverfisstofnun Gögn og kortKortasjá yfir verkefni fjármögnuð af Framkvæmdasjóði og Landsáætlun Skilgreining ferðamannaleiða og ferðamannavega – Vegagerðin Umsóknir og fjármögnunFramkvæmdasjóður ferðamannastaða – umsóknir Landsáætlun um innviði |


