Launagreiðslur í ferðaþjónustu á Norðurlandi
Hagstofa Íslands safnar gögnum um staðgreiðsluskyld laun á landsvísu og eftir landshlutum. Hægt er að skoða upphæðir launagreiðsla eftir mánuðum og árum, fjölda launþega og fjölda launagreiðenda. Gögnin eru greinanleg eftir atvinnugreinum og atvinnugreinahópum. Til að átta sig á umfangi ferðaþjónustunnar hefur Hagstofan skilgreint atvinnugreinahóp undir heitinu Einkennandi greinar ferðaþjónustu. Um er að ræða hóp samkvæmt ÍSAT2008 flokkun sem m.a. er samsettur af greinum er varða farþegaflutninga, rekstur hótela, gistiheimila, veitingastaða, ferðaskrifstofa, bílaleiga, bókunarþjónustu o.fl. Vert er að hafa í huga að launagreiðslur einyrkja með rekstur á eigin kennitölu (reiknað endurgjald) eru ekki inn gögnum Hagstofunnar.
Hversu margir Norðlendingar hafa launatekjur frá ferðaþjónustu?
Á árinu 2025 höfðu 2353 manns launatekjur að meðaltali á mánuði frá ferðaþjónustu.
Myndin hér að neðan sýnir fjölda þeirra einstaklinga sem lögheimili eiga á Norðurlandi og þiggja launagreiðslur frá launagreiðendum í ferðaþjónustu. Um er að ræða meðalfjölda á mánuði, en vissulega sveiflast fjöldin talsvert eftir árstíðum. Fjöldi einstaklinga sem fær greidd staðgreiðsluskyld laun er talning á hverjum þeim sem fær greidd laun frá launagreiðanda. Ekki ergerður greinamunur á því hvort viðkomandi sé í fullu starfi eða hlutastarfi og ekkert lágmarksviðmið er á launagreiðslum. Hér er því ekki um heil störf að ræða. Einnig ber að hafa í huga að ef launþegi fær greitt frá fleiri en einum aðila, telst hann jafn oft og launagreiðendurinir eru margir.