Verkefni 1: Uppbygging áfangastaða á Vatnsnesi
Markmiðið er að mæta sífellt auknum áhuga ferðafólks á Vatnsnesi. Framkvæmdir við veginn fyrir Vatnsnes eru á samgönguáætlun næstu ára. Vegurinn er jafnframt hluti af Norðurstrandarleið. Því má búast við aukinni umferð á komandi árum. Áhersla er lögð á að byggja upp áningarstaði á nesinu í samstarfi við landeigendur. Staði sem tengjast sögu, menningu og náttúruupplifun s.s. sela- og fuglaskoðun og eru þegar farnir að draga að sér gesti þó ekki hafi verið ráðist í uppbyggingu þar. Er því um að ræða mikilvægt verkefni til að koma í veg fyrir náttúruspjöll og jafnframt til að gæta öryggis ferðamanna. Mikilvægt er að geta einnig byggt upp góða staði til náttúruskoðunar, sem ekki sæta lokunum yfir
hluta sumarsins vegna varptíma sem nú er. Einnig er mikilvægt að fjölga selaskoðunarstöðum til að minnka álag á þá staði sem fyrir eru til að vernda lífríki staðanna.
Verkefnislýsing: Kortlagning nýrra áfangastaða og samtal við landeigendur á hverjum stað. Í framhaldinu uppbygging á þeim stöðum sem verða fyrir valinu í samráði við landeigendur svo sem (ekki tæmandi listi): A) Illugastaðir B) Svalbarð C) Flatnefsstaðir D) Tjörn E) Hamarsrétt F) Ánastaðastapi G) Skarðsviti.
Einungis á þeim fyrstnefnda hefur til þessa verið einhver markviss uppbygging. Jafnframt verður farið í uppbyggingu við Hvítserk sem er sérstakt verkefni á áfangastaðaáætlun og Borgarvirki sem er á landsáætlun og í umsjón Minjastofnunar. Skoðaðir verði fleiri hugsanlegir áfangastaðir.
Helstu verkliðir: A) Kortlagning áfangastaða í samvinnu við landeigendur, B) Forgangsröðun uppbyggingar, C) Deiliskipulag viðeigandi staða, D) Styrksumsóknir, E) Framkvæmdir í takt við forgangsröðun.
Verkefni 2: Borðeyri
Markmið verkefnisins er uppbygging Borðeyrar sem áfangastaðar.
Verkefnislýsing: Unnið verði að útfærslu og þróun Borðeyrar sem áfangastaðar í kjölfar skilgreiningar „verndarsvæðis í byggð“, þar sem unnið verði með þá möguleika, sem saga og húsakostur bjóða upp á, auk þess að möguleikar til náttúruskoðunar og sögutengds viðburðahalds verði efldir.
Helstu verkliðir:
A. Hönnun og deiliskipulag svæðisins (þegar hafið)
B. Forgangsröðun verkefna
C. Styrksumsóknir
D. Framkvæmdir í takt við forgangsröðun svo sem (ekki tæmandi listi):
i. Uppsetning náttúrulaugar við Borðeyri (heitur pottur úr stuðlabergi sem hópur heimamanna stendur að)
ii. Uppsetning fuglaskoðunarstaðar á eða í jaðri Borðeyrar
iii. Endurgerð bryggju sunnanmegin á tanganum
Verkefni 3: Hvítserkur
Markmið verkefnisins er heildstæð uppbygging áfangastaðarins við Hvítserk sem er fjölsóttasti ferðamannastaðurinn á Norðurlandi vestra. Með uppbyggingunni er stefnt að því að bæta öryggi og aðgengi, vernda náttúru svæðisins, stýra umferð gesta, draga úr álagi á náttúru og lífríki og efla upplifun gesta.
Verkefnislýsing: Hvítserkur er eitt þekktasta náttúrufyrirbæri Íslands. Bergdrangurinn, sem rís 15 metra upp úr Húnaflóa austanmegin á Vatnsnesi, laðar að sér gesti með sérkennilegri lögun, fjölbreyttu fuglalífi og nálægð við seli. Mikil aukning í heimsóknum ferðamanna hefur valdið álagi á viðkvæmt umhverfi. Gróðurslit, jarðvegseyðing og óöruggar gönguleiðir kalla á aðgerðir sem vernda náttúruna og bæta aðgengi og öryggi. Deiliskipulag hefur verið unnið og heildarhönnun svæðisins liggur fyrir sem unnin var af Jóni Rafnari Benjamínssyni hjá Nordic Arcitecture í Kaupmannahöfn. Verkefnið byggir á því að mannvirki falli sem best að landslaginu og felur meðal annars í sér:
- nýtt stígakerfi með góðu aðgengi,
- útsýnispalla með fjölbreyttum sjónarhornum,
- öruggari leið niður að fjöru,
- þjónustumiðstöð með upplýsingum, salernum og dvalaraðstöðu,
- endurbætt aðkomu- og bílastæði.
Helstu verkþættir:
A. Kostnaðarmat einstakra verkþátta út frá hönnun
B. Forgangsröðun verkþátta, þó hefur verið ákveðið að fyrsta verkefnið verði gerð stiga niður í fjöru frá útsýnispalli en um er að ræða mikið öryggismál þar sem fallhætta er mikil
C. Styrksumsóknir
D. Framkvæmdir
Verkefni 4: Kolugljúfur
Markmið verkefnisins er uppbygging aðstöðu fyrir ferðamenn við Kolugljúfur til að bæta öryggi ferðamanna og vernda náttúru.
Verkefnislýsing: Kolugljúfur með sínum tilkomumiklu fossum er fyrir löngu orðið eitt af kennileitum svæðisins og sennilega einn fjölfarnasti áningastaður ferðafólks í sveitarfélaginu sunnan hringvegar. Staðurinn er farinn að sýna merki átroðnings og skemmdir eru orðnar nokkrar á náttúru. Um mikið öryggismál er að ræða vegna aðstæðna við gljúfrin og mikillar fallhættu víða á svæðinu. Mikilvægt er að ljúka uppbyggingu og frágangi á svæðinu til að mæta aukinni umferð og bæta öryggi. Deiliskipulag liggur fyrir.
Helstu verkþættir:
A) Samkomulag við landeigendur beggja vegna gljúfra um uppbyggingu á svæðinu
B) Endurskoðun deiliskipulags ef þurfa þykir
C) Fullnaðarhönnun svæðisins í samvinnu við landeigendur
D) Kostnaðarmat verkþátta
E) Forgangsröðun verkefna, útsýnispalla og stíga
F) Styrksumsóknir
G) Framkvæmdir
Verkefni 5: Bergárfossar
Markmið verkefnisins er uppbygging áfangastaðarins við Bergárfossa til að bæta öryggi ferðamanna og vernda náttúru. Verkefnið býður upp á tengingu við áfangastaðinn við Kolugljúfur og getur því búið til enn sterkari áfangastaður í Víðidal sem leiðir til heildstæðari náttúruupplifunar gesta og lengri viðdvalar í sveitarfélaginu.
Verkefnislýsing: Á undanförnum árum hafa Bergárfossar orðið æ vinsælli viðkomustaður ferðamanna án markvissrar kynningar. Um er að ræða einn af svokölluðum „instagram“ stöðum sem hefur komist á kortið smátt og smátt. Mikilvægt er að tryggja öryggi gesta og vernda náttúru með skipulögðum gönguleiðum og útsýnisstöðum áður en að átroðningur veldur óafturkræfum skemmdum á náttúru eða alvarlegum slysum á fólki.
Helstu verkliðir:
A) Samtal við landeigendur um mögulega uppbyggingu á svæðinu
B) Deiliskipulag svæðisins og heildarhönnun
C) Kostnaðarmat verkþátta
D) Forgangsröðun verkefna
E) Styrksumsóknir
F) Framkvæmdir