Uppbygging áfangastaða
Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að byggja upp og viðhalda góðum áfangastað. Hér finnur þú upplýsingar og gagnlegt efni fyrir sveitarfélög, landeigendur og aðra sem koma að uppbyggingu áfangastaða.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða um land allt og styðja með því við þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar stoðar í íslensku atvinnulífi. Það er jafnframt markmið sjóðsins að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.
Styrkt verkefni verða að efla öryggi ferðamanna eða stuðla að náttúruvernd á ferðamannastöðum. Sjóðurinn getur styrkt allt frá undirbúnings- og hönnunarvinnu til framkvæmda og viðhalds. Rík krafa er á að umsóknir séu vel ígrundaðar og vandaðar, enda er um samkeppnissjóð að ræða. Umsóknarfrestur er að hausti ár hvert og úthlutun fer fram að vori.
Við mat á umsóknum er meðal annars horft til:
- Tengingar við áfangastaðaáætlun.
- Samræmis við svæðisbundna forgangsröðun.
- Áhrifa á öryggi, verndun og aðgengi.
Verkefni sem eru skilgreind í áfangastaðaáætlun fá aukið vægi í stigagjöf sjóðsins, sem undirstrikar mikilvægi þess að vinna uppbyggingu í samræmi við sameiginlega stefnu svæðisins.
Upplýsingasíða um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Landsáætlun um innviði
Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjun er tólf ára áætlun á vegum Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis. Framkvæmdaáætlun er sett fram á hverju ári til þriggja ára í senn. Hún nær til áfangastaða sem flestir heyra undir þjóðgarða, Náttúruverndarstofnun eða Minjastofnun. Stöku staðir á Landsáætlun eru í umsjá annarra aðila, á borð við Skógræktina eða Þjóðminjasafn Íslands. Fjármögnun tengd landsáætlun beinist því fyrst og fremst að:
- Sveitarfélögum.
- Ríkisstofnunum og öðrum opinberum aðilum.
- Öðrum umsjónaraðilum ferðamannastaða.
Verkefni sem falla að áherslum landsáætlunar og byggja á svæðisbundinni forgangsröðun standa almennt sterkari í samkeppni um fjármagn.
Upplýsingasíða um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
Leiðbeiningar og framkvæmd
|
Við uppbyggingu áfangastaða er mikilvægt að styðjast við viðurkennd verkfæri og leiðbeiningar. Þar má sérstaklega nefna:
|
![]() |
Annað gagnlegt efni
Leiðbeiningar um uppbyggingu ferðamannastaða
Ferðamannastaðir frá hugmynd til framkvæmdar – skipulag og leyfisveitingar
Yfirlit yfir ferli frá hugmynd að framkvæmd, með áherslu á skipulag og leyfisveitingar.
Skoða efni
Góðir staðir – uppbygging ferðamannastaða
Leiðbeiningar um vandaða uppbyggingu og hönnun áfangastaða.
Skoða efni
Góðar leiðir – leiðbeiningar um gerð náttúrustíga
Leiðbeiningar um hönnun og uppbyggingu stíga í náttúru Íslands.
Skoða efni
Merkingar og leiðbeiningakerfi
Vegrún – merkingar á ferðamannastöðum og friðlýstum svæðum
Leiðbeiningar um samræmda merkingu og skilti á ferðamannastöðum.
Skoða efni
Skiltahandbók Skógræktarinnar
Viðmið um uppsetningu og hönnun skilta í útivistarsvæðum.
Skoða efni
Skipulag, hönnun og stefnumótun
Hönnun í norrænni náttúru
Innblástur og vel heppnuð dæmi. Samantekt úr samnorrænu verkefni "Design in Nature".
Skoða efni
Menningarstefna í mannvirkjagerð
Áherslur um gæði og samhengi í mannvirkjagerð.
Skoða efni
Lög og réttindi
Upplýsingarit fyrir sveitarfélög er varða hlutverk og skyldur skv. náttúruverndarlögum.
Yfirlit um leyfisveitingar, sérstaka vernd, firðlýsingar og fleira.
Skoða efni
Almannaréttur – Umhverfisstofnun
Upplýsingar um rétt almennings til ferða og dvalar í náttúru.
Skoða efni
Gögn og kort
Kortasjá yfir verkefni fjármögnuð af Framkvæmdasjóði og Landsáætlun
Yfirlit yfir uppbyggingarverkefni og fjármögnun þeirra.
Skoða efni
Skilgreining ferðamannaleiða og ferðamannavega – Vegagerðin
Upplýsingar um flokkun og skilgreiningu ferðamannaleiða.
Skoða efni
Umsóknir og fjármögnun
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – umsóknir
Upplýsingar um umsóknarferli og úthlutanir.
Skoða efni
Landsáætlun um innviði
Upplýsingar um uppbyggingu og forgangsröðun innviða ferðamannastaða.
Skoða efni
