Áin Álftarskálará rennur eftir all hrikalegu gljúfri sem nefnt er Álkugil. Gönguleiðin er merkt frá veginum í Vatnsdal og liggur meðfram gilinu austanmegin, að Einvígisfossi.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Hægt að leggja við hliðið
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Engin salernisaðstaða eða ruslafötur.
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Gengið er eftir vegslóða, kindaslóð og í grasþúfum. Mikið er um hross á svæðinu og skal tekið tillit til þeirra. Sýna skal varúð við gilsbrúnir vegna skriðhættu.
Á veturna gæti leiðin verið snjóþung.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.