Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Stangveiði

Á Íslandi er ógrynni áa og vatna. Tækifæri til stangveiði eru því óþrjótandi.

Iceland Fishing Guide
Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana. Sjá einnig www.icelandicadventures.is
Iceland Hunting Guide
Ytra Lón Farm Lodge
Ytra Lón – Athvarf í sveit Ytra Lón er athvarf í sveit á Langanesi, þar sem kyrrð, víðátta og nálægðin við náttúruna skapa rými til að hægja á sér og njóta þess að vera. Hér er ekki aðeins komið til að gista, heldur til að dvelja. Við leggjum áherslu á lengri dvöl og tökum sérstaklega vel á móti hópum sem vilja eiga nokkra daga saman – hvort sem tilgangurinn er að ganga, skapa, halda námskeið, vinna saman eða einfaldlega njóta samveru í rólegu umhverfi. Ytra Lón hentar meðal annars gönguhópum, skapandi og listrænum námskeiðum, handverkshópum, vinnuhópum, vina- og fjölskylduhópum og leiðbeinendum sem vilja koma með eigin dagskrá. Hópar geta skipulagt dvölina sjálfir eða fengið aðstoð okkar við að bæta við ferðum, göngum og öðrum upplifunum. Náttúran er stór hluti af dvölinni. Hafið, ströndin, áin og víðáttan eru rétt við bæjardyrnar og Langanesið býður upp á einstakar gönguleiðir, fuglalíf og kyrrð. Á Ytra Lóni er jafnframt lifandi búskapur með sauðfé, hestum, hundum og hænum og gestir fá að upplifa taktinn í sveitalífinu í návígi. Við bjóðum upp á níu rúmgóð herbergi/stúdíó með sérbaðherbergi, sameiginlega borðstofu og aðstöðu fyrir fundi, námskeið, jóga og skapandi vinnu. Hægt er að velja dvöl með fullu fæði þar sem morgunverður, hádegisverður og kvöldverður eru innifalin. Við nýtum hráefni úr nærumhverfinu og frá eigin búi eftir því sem kostur er. Dvölin getur verið virk eða hæg – gönguferðir um Langanesið, fuglaskoðun, fjöruferðir, handverk og sköpun, kynni af búskapnum eða einfaldlega góður matur, samvera og tími til að vera. Ytra Lón er heimili frekar en hótel – athvarf í sveit fyrir þá sem vilja dvelja aðeins lengur, tengjast náttúrunni og finna sinn eigin takt á ysta hluta Langaness. 

Aðrir (5)

Iceland Unlimited ehf. Borgartún 27 105 Reykjavík 415-0600
Brekkulækur Brekkulækur 531 Hvammstangi 451-2938
Gistihúsið Staðarhóli Staðarhóll, Aðaldalur 641 Húsavík 464-3707
Brunná Hvirfilvellir 671 Kópasker 777-1600
Arctic Angling Hafnarbraut 2 675 Raufarhöfn 780-6995