SBA-Norðurleið
SBA Norðurleið rótgróið fyrirtæki í hópferðaakstri með starfsstöðvar á Akureyri og í Hafnarfirði. Alla jafna getum við útvegað hópferðabíla með skömmum fyrirvara. Við leggjum metnað í að bjóða viðskiptavinum góða bíla sem henta við öll tækifæri, jafnt að sumri sem vetri. Við erum með yfir 80 hópferðabíla af ýmsum stærðum og gerðum og þar af eru nokkrir öflugir fjórhjóladrifnir (4X4) rútur sem auka möguleika og öryggi í fjalla- og vetrarferðum. Bílstjórar okkar hafa hlotið margvíslega þjálfun og flestir hafa áratuga reynslu af akstri við krefjandi aðstæður. Allar okkar rútur eru útbúnar með öryggisbeltum, hljóðkerfi, sjónvarpi og þráðlausu neti. Hægt er að fá ferðir með leiðsögn á íslensku eða á erlendum tungumálum.
SBA Norðurleið er aðili að Samtökum ferðaþjónustunnar og Vakanum sem er gæða- og umhvefiskerfi ferðaþjónustunnar.
Það getur verið þægilegur, hagkvæmur og umhverfisvænn kostur að leigja rútu. Algengustu verkefni okkar eru:
Lengri og styttri hópferðir fyrir ferðaskrifstofur, fyrirtæki og einkaaðila.
Dagsferðir og langferðir með leiðsögn á íslensku
Íþróttaferðir
Akstur til og frá flugvelli
Skólahópar
Ráðstefnuhópar
Akstur í tengslum við veislur og hátíðleg tækifæri
Til að fá tilboð eða frekari upplýsingar sendið tölvupóst á sba@sba.is. Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
View