Fara í efni

Gönguferðir

Stóraukin þjónusta við göngufólk hefur verið áberandi í ferðaþjónustu á Norðurlandi á síðustu árum. Mikill fjölbreytileiki er í gönguleiðum á Norðurlandi. Þannig má bæði finna þægilegar gönguleiðir fyrir alla fjölskylduna, t.d. í nágrenni Sauðárkróks, og krefjandi gönguleiðir, t.d. í nágrenni Hóla í Hjaltadal og víðar á Tröllaskaga. Í Fjörðum og víðar má skynja sögu horfinna byggða og víða í Húnavatnssýslum má rekja sig um slóðir fornsagna, t.d. Grettissögu. Við gönguferð má síðan auðveldlega tengja stangaveiði, safnaskoðun, siglingu, hvalaskoðun, selaskoðun, flúðasiglingar, hestaferð eða eitthvað annað. Reimaðu á þig gönguskóna, ævintýrin bíða þín fyrir norðan!

Arctic Trip
Arctic Trip er ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi á Norðurlandi með sérhæfingu í ferðum um heimskautaeynna Grímsey. Grímsey er einstakur staður, sérstaklega þegar kemur að fuglalífi. Eyjan er vin í þeirri eyðimörk sem Norður-Atlantshafið er og björgin veita skjól þeim sjófuglum sem þangað sækja, meðal þeirra má nefna fýl (Fulmarus glacialis), teistu (Cepphus grylle), ritu (Rissa tridactyla), lunda (Fratercula arctica), álku (Alca torda), langvíu (Uria Aalge) og stuttnefju (Uria Lomvia). Grímsey er einstakur staður til fuglaskoðunar þar sem flesta þá vað- , mó- og sjófugla sem eiga sumardvöl á Íslandi má finna í eynni á litlu landsvæði. Sögur og sagnir skipa æ sterkari sess í ferðaþjónustu og af þeim er nóg að taka í Grímsey. Með samstarfi við heimamenn viljum við segja þessar sögur og bjóða ferðamenn velkomna á þessa afskekktu eyju, nyrsta odda Íslands, undir heimskautsbaugi, þar sem þú ert svo sannarlega „on top of the world!” Helstu ferðir þetta ferðaár eru skoðunarferðir á landi og á sjó ásamt fugla-áskorun í anda Hitchcock. Einnig bjóðum við köfunar- og snorklferðir, sjóstöng, eggjatínslu og hjólreiðaleigu en um eynna liggja ýmsir stígar sem mótaðir hafa verið í aldanna rás og eru spennandi yfirferðar. Einnig bjóðum við upp á gistingu yfir sumarmánuðina fyrir þá sem vilja dvelja lengur og njóta Grímseyjar. Virðing fyrir umhverfinu, hinu villta dýralífi og viðkvæmri náttúru Íslands er hornsteinninn í okkar hugsjón. Arctic Trip var stofnað með þá hugsjón að ferðamenn eigi skilið að slaka á á ferðum sínum, næra hugan og endurnæra líkama og sál. Mikilvægur þáttur er einnig að skapa minningar sem lifa um ókomna tíð.
Inspiration Iceland
Inspiration Iceland er fyrirtæki sem leggur áherslu á lifandi og skemmtileg ferðalög.  Við bjóðum uppá ævintýraferðir til orkustaða og náttúrulinda, heilsu- og jóga ferðalög undir miðnætursólinni og norðurljósunum. Inspiration iceland býður uppá dagsferðir, slökunardaga og spennandi vikulöng vellíðunar-, heilsu- eða yogafrí. Við bjóðum upp á glæsilegar vellíðunar- og ævintýraferðir á 66°  North.Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
Ferðaþjónustan Brúnastöðum
Á Brúnastöðum er rekin ferðaþjónusta allt árið um kring. Boðið er upp á gistingu í tveimur stórum húsum sem leigjast út í heilu lagi og geta hýst að minnsta kosti tíu manns hvort.  Bæði húsin eru með heitum pottum. Tilvalið fyrir litla hópa eða stórfjölskyldur. Með húsunum fylgir aðgangur að húsdýragarðinum á Brúnastöðum og að tveimur „sit on top“ kajökum sem hægt er að nota á Miklavatni, en vatnið er stutt frá húsunum. Fljótin eru mikil náttúruparadís. Ótal gönguleiðir eru í fjallgörðum Tröllaskagans. Hægt er að kaupa ódýr veiðileifi í Miklavatn hjá húsráðendum. Stutt er í sundlaugar, á Sólgörðum, Hofsósi, Siglufirði og Ólafsfirði, á þessum stöðum eru einnig forvitnileg söfn og góðir veitingarstaðir. Mikið og fjölbreytt fuglalíf er á svæðinu, einnig eru Fljótin þekkt fyrir mikla berjasprettu. HúsdýragarðurinnÁ Brúnastöðum er lítill húsdýragarður opinn yfir sumartímann. Þar má finna öll helstu íslensku húsdýrin, s.s. geitur, heimalinga, grísi, kanínur, kalkúna, endur, margar tegundir af hænum og yrðlinga. Garðurinn er opinn frá 25. júní til 1. sept, frá 11:00 til 18:00.  Þið finnið okkur á Facebook hér.
Sóti Lodge / Summit Heliskiing
Ferðaskrifstofan Sóti Summits leiðir saman fólk sem þyrstir í ævintýri í náttúru Íslands. Lögð er áhersla á að veita gæðaþjónustu og skapa eftirminnilegar upplifanir fyrir gesti.  Ferðaframboðið er byggt á grunni þess sem starfsfólk og aðstandendur Sóta vilja upplifa og njóta sjálf, en m.a. býður Sóti Summits námskeið fyrir gönguskíðafólk, fjallaskíðakappa, kayakræðara og fjallahjólafólk. Auk þessa hannar Sóti Summits ferðir fyrir hvers kyns hópa, setur saman sérhannaða dagskrá, sér um allar ferðaskipulagningu og heldur utan um hópinn á meðan á dagskrá stendur. Þetta er tilvalinn kostur fyrir vinahópa og fjölskyldur, sem og vinnustaði sem vilja auðga vinnustaðamenninguna, ræða framtíðarsýn og stefnumál og friðsælu umhverfi, eða hrista ghópinn saman með þátttöku í útivist og ævintýrum.
SBA-Norðurleið
SBA Norðurleið  rótgróið fyrirtæki í hópferðaakstri með starfsstöðvar á Akureyri og í Hafnarfirði. Alla jafna getum við útvegað hópferðabíla með skömmum fyrirvara. Við leggjum metnað í að bjóða viðskiptavinum góða bíla sem henta við öll tækifæri, jafnt að sumri sem vetri. Við erum með yfir 80 hópferðabíla af ýmsum stærðum og gerðum og þar af eru nokkrir öflugir fjórhjóladrifnir (4X4) rútur sem auka möguleika og öryggi í fjalla- og vetrarferðum. Bílstjórar okkar hafa hlotið margvíslega þjálfun og flestir hafa áratuga reynslu af akstri við krefjandi aðstæður. Allar okkar rútur eru útbúnar  með öryggisbeltum, hljóðkerfi, sjónvarpi og þráðlausu neti. Hægt er að fá ferðir með leiðsögn á íslensku eða á erlendum tungumálum. SBA Norðurleið er aðili  að Samtökum ferðaþjónustunnar og Vakanum sem er gæða- og umhvefiskerfi ferðaþjónustunnar. Það getur verið þægilegur, hagkvæmur og umhverfisvænn kostur að leigja rútu.  Algengustu verkefni okkar eru: Lengri og styttri hópferðir fyrir ferðaskrifstofur, fyrirtæki og einkaaðila. Dagsferðir og langferðir með leiðsögn á íslensku Íþróttaferðir Akstur til og frá flugvelli Skólahópar Ráðstefnuhópar Akstur í tengslum við veislur og hátíðleg tækifæri Til að fá tilboð eða frekari upplýsingar sendið tölvupóst á sba@sba.is. Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er. 
Akureyri - Gakktu í bæinn
Vegna anna er ekki lengur hægt að bóka í ferðir þetta sumarið.
Kaffi Klara - Gistihús og veitingar
KAFFI KLARA  Kaffi Klara er til húsa í gömlu pósthúsinu í Ólafsfirði, sögufrægt hús í hjarta Ólafsfjarðar sem gért var upp í 2013 og innréttað sem kaffihús og gistiheimili.   Kaffi Klara er notalegt og heimilislegt kaffhús þar sem lögð er áhersla á að hlúa vel að gestunum, nota hráefni úr héraði, elda matinn sem mest frá grunni og skapa matarupplifun. Boðið upp á rétt dagsins og um helgar er í boði súpa og brauð auk þess sem boðið er upp á smurt brauð, bökur, súrdeigspitsur, kökur, tertur og vöfflur.  Tapasveislur, hlaðborð, purusteikur, brunch, tónleikar, sýningar m.m. eru reglulega auglýst á facebooksíðu Kaffi Klöru. Kaffi Klara er einnig með veitingaþjónustu og tekur á móti smærra hópa ferðamanna, fjölskyldna, samstarfsfólks, saumaklúbbur, eða félagssamtök. GISTIHÚSIР Gistihúsið okkar er staðsett á efri hæð Kaffi Klöru, í miðbær Ólafsfjarðar. Það eru 5 herbergi og 2 baðherbergi. Við eigum 1 frábært stórt herbergi með pláss fyrir 4 t og 1 aðeins minni herbergi með pláss fyrir 3. Bæði herbergin eru tilvalin fyrir fjölskyldur. Herbergin eru með nútímalegum innréttingum og eru með viðargólf og handlaug. Gestir hafa aðgang að sameiginlegri baðherbergisaðstöðu auk sameiginlegs svæðis með ísskáp og hraðsuðukatli. Gistihúsið tekur 11-12 manns í gistingu. Gistihúsið er tilvalið fyrir stórfjölskyldan, fyrir göngu eða hjólahópa sem vilja njóta náttúrunnar á Tröllaskaga eða fyrir gólfarar. Leitið til okkar eftir tilboð fyrir gisting og fæði. 
Scandinavia Travel North ehf.
Scandinavia Travel North er ferðaskrifstofa og –skipuleggjandi á Íslandi, með sérstaka áherslu á norður- og austurhluta landsins. Við bjóðum alhliða ferðaþjónustu, þ.á.m. akstur, skoðunarferðir, leiðsögn, og bókarnir á gistingu, afþreyingu, viðburðum, veitingum o.s.frv. Scandinavia Travel North leggur sérstaka áherslu á vel útfærðar sérsniðnar ferðir með áherslu á heildarupplifun þátttakenda.  Auk hefðbundinna skoðunarferða og áfangastaða, bæði sem dagsferðir og nokkra daga pakkar, þá skipuleggjum við einnig ferðir utan alfaraleiða og vinsælustu svæðanna. Slíkar sérsniðnar ferðir gætu leitt þig til þekktra áfangastaða á landinu, en einnig til minna þekktra svæða eða áhugaverðra staða, með von um að heildarupplifun og reynsla verði sem mest og best. Við leggjum okkur fram um að segja sögur og tengja við staðhætti, menningu, hefðir og arfleifð. Skipulag hópferða er okkar fag. Við bjóðum bæði faglega og sérhæfða þjónustu í formi skipulags og undirbúnings, ásamt öllu utanumhaldi. Skipulag á landi, skoðunarferðir, gisting og veitingar, afþreying o.s.frv. Við eigum ferðaplön og hugmyndir, en erum ávallt tilbúin að útfæra sérstaklega ferðaskipulag í samræmi við þínar óskir, áhugasvið, tímaramma, aðstæður og hvað á að vera innifalið. Fyrir einstaklinga og litla hópa, þá bjóðum við sérferðir með leiðsögn og einnig bílaleigupakka. Scandinavia Travel North er með leyfi ferðaskrifstofu frá Ferðamálastofu. 
Ferðafélagið Trölli
Við erum með 25 mismundandi krefjandi göngur frá 1. maí til 4. sept 2021.  Hittumst flesta þriðjudaga við fótboltahúsið á Ólafsfirði kl.17.15 þar sem raðað er í bíla og lagt af stað í 2-3 klt. göngur, ekki svo kröfuharðar.   Ein helgi í mánuði, á laugardegi, er gengið lengra og gangan er meira krefjandi sem tekur 3-5 klt.   Hægt að kaupa árskort eða borga staka ferðir.   12.-18. júlí er svo gönguvika sem hægt er að kaupa sig í annars innifalið í árskortinu. Þá er gengið 7 daga í röð miskrefjandi ferðir.   Skemmtilegar göngur í hreint dásamlegum fjallasal sem Tröllaskaginn býður uppá.   Upplýsingar í síma 868-8853 Harpa eða 663-2969 María.   
Iceland Yurt
Iceland Yurt býður upp á einstaka gistingu í Mongólíu tjöldum (Ger/Yurt) allan ársins hring í rólegu og náttúrulegu umhverfi með stórkostlegt fjallaútsýni og útsýni yfir Eyjafjörð og Akureyri. Einnig eru þau með Gaia hofið þar sem boðið er upp á námskeið og heilsumeðferðir fyrir ferðamenn, náttúruunnendur og þá sem vilja efla eigin heilsu og innri styrk.Þetta býður upp á meiri meðvitund um náttúruna og umhverfið jafnt sem eigið andlegt og líkamlegt jafnvægi. Gaia hofið, námskeið og tónheilun Þóra Sólveig býður upp á námskeið, hugleiðslur, athafnir, hreyfingu í núvitund/dans, djúpa slökun og tónheilun. Solla spilar á gong, kristal hljómskálar og önnur heilandi hljóðfæri fyrir einstaklinga, pör og hópa í náttúrunni eða inni í Gaia hofinu í okkar einstaka hand útskorna Yurt. Hægt er m.a. að bóka einkatíma í hljóðheilun með kristal tónkvísl og hreinum kjarnaolíum.  Nokkur orð frá gestum okkar: Gisting í Yurt: ‘Amazing yurt, very cozy and warm. Beautiful view in such a quiet place’ ‘This place is truly amazing. The kids will be talking about their stay in the yurt for a long time to come´ ´This was such a fun and memorable experience for myself, my husband, and our 2-year old son.´ ´We stayed at Iceland Yurt with three of us when travelling around Iceland in August. I have never slept in a yurt before and I am really impressed how clean and comfortable everything was. The yurt is really cozy with a stove in the middle, the beds are great and there are plenty of woollen blankets and pillows. We fell asleep listening to the light drizzle of rain outside and woke up next morning to a beautiful view over Akureyri and with a great breakfast lovingly prepared in a small cooling box. The hosts are so nice and welcoming and I'll gladly stay here again.´ Heilsumeðferð í Gaia hofinu: ´Amazing experience with Solla- felt like a part inside of me was awaken again and I felt new born after!! I felt like in peace surrounded with relaxing and nourishing healing bowls and  gong sounds, touching the body and soul- and Solla guided me with a respectful and intuitive way through sounds and touch to remember my own being again. A deep and healing experience - I warmly recommend to receive a healing session with Solla! So grateful to get the first private session with her!´ (in the Gaia Temple).
Gistiheimilið Básar
Á Básum eru 8 herbergi með 18 rúmum. Skipast þau þannig að það eru 2 einsmannsherbergi, 3 tveggjamanna, 2 þriggjamanna og 1 fjögurramanna. Hægt er að fá morgunmat, hádegismat, kaffi og kvöldmat. Fallegar myndir af lífinu í Grímsey príða veggi Bása allt frá torfkofum til dagsins í dag, þessar myndir er hægt að fá keyptar (ljósmyndarinn er hinn eini sanni Friðþjófur Helgason). 
Geo Travel
Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
Ferðaskrifstofan Nonni
Ferðaskrifstofan Nonni Travel ehf.,stofnað 1988, er staðsett við Ráðhústorgið í harta Akureyrar. Aðaláhersla er á skipulagningu ferða og móttöku erlenda gesta á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Nonni Travel býður upp á gott úrval ferða og ýmsa afþreyingu. Nonni Travel er sérhæfð í ráðgjöf og skipulagningu sérsniðinna ferða fyrir einstaklinga og hópa. Nonni Travel hefur mikla reynslu í ráðstefnuhaldi og skipulagningu stærri funda.
The Traveling Viking
The Traveling Viking er nýr og framsækinn ferðaskipuleggjandi í Eyjafirði með áherslu á norðaustur Ísland.The Traveling viking býður upp á persónulega og mjög góða þjónustu við ferðamenn á svæðinu, hvort sem þar er um að ræða erlent sem innlent ferðafólk. Við viljum með persónulegri þjónustu, ríkri þjónustulund og góða skapinu,  búa okkur til sérstöðu á markaðnum og bjóða upp á úrvalsferðir fyrir jafnt minni sem stærri hópa. The Traveling Viking býður uppá ótal möguleika á ferðum um svæðið. Einnig getum við hæglega sett saman ferð fyrir ykkur hvert á land sem er. Við erum með stóran lista af samstarfsaðilum, sem við getum með stuttum fyrirvara hóað í okkur til aðstoðar við að búa til ógleymanlega ferð, hvort sem þar er um að ræða stóra sem minni hópa. Það breytir engu hvort um er að ræða saumaklúbb, útskriftarhópa, félagasamtök, vinnufélaga, íþróttahópa eða hvað sem er. Hafið samband og við hjálpum ykkur að búa til þá ferð sem þið viljið fá.
Sportferðir ehf.
Sportferðir er ferðaþjónustufyrirtæki, staðsett í Eyjafirði með hópferða- og ferðaskrifstofuleyfi. Sportferðir sérhæfa sig í skipulagningu hvataferða og hópeflis fyrir fyrirtæki og einnig árshátíða- og skemmtiferða  hverskonar fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Ferðirnar eru framkvæmdar um allt land og í samvinnu við marga aðra ferðaþjónustuaðila. Gísting á vegum Sportferða er í Ytri-Vík í Eyjafirði.  Gamla húsið er steinhús á þremur hæðum sem byggt var 1929 og hefur verið mikið endurnýjað.Í húsinu eru 7 svefnherbergi tveggja- og þriggjamanna og rúmar húsið 16 manns í uppbúin rúm. Í húsinu er fullbúið eldhús og borðstofa sem rúmar 25 manns og einnig lítil setustofa.  Í kjallara hússins er gufubað og búningsaðstaða fyrir gesti og stór heitur pottur fyrir utan.Frístundahúsin Í Ytri Vík eru einnig 7  fullbúin sumarhús.
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Bakkaflöt er fjölskyldurekið fyrirtæki sem byrjaði með gistingu og veitingar árið 1987. Erum með gistingu í smáhýsum með sérbaði, herbergjum með sameiginlegu baði, stærri sumarhúsum og tjaldstæði. Sundlaug, heitir pottar, veitingastaður og bar á staðnum.  Frá árinu 1994 höfum við boðið upp á fljótasiglingar niður Austari og Vestari jökulsá.  Í sumar(2020) erum við með tilboð í Vestari jökulsá: 11.900 kr á mann. 8.000 kr fyrir 9-12 ára.  Frábær ferð um skemmtilegt landslag. Stoppað til að fá sér kakó úr heitri uppsprettu og svo er auðvitað stoppað við stökk klettinn og þeir sem vilja stökkva ofan í ána.  Bjóðum einnig upp á Sit on top Kayak ferðir niður Svartá, Paintball, Þrautabraut og Loftbolta.  Á staðnum: Gisting í smáhýsum með sérbaði, stærri sumarhúsum, herbergjum án baðs, tjaldstæði, lítil sundlaug og heitir pottar, veitingastaður og bar.
Bergmenn ehf.
Jökull Bergmann er stofnandi Bergmanna og jafnframt fyrsti og eini faglærði fjallaleiðsögumaður landsins. Bergmenn sérhæfa sig í leiðsögn og kennslu á öllum sviðum fjallamennsku. Á Íslandi leggjum við megináherslu á fjallaskíða- og þyrluskíðaferðir á vorin ásamt fjallgöngum á landsins hæstu tinda. Á sumrin klífum við kletta og fjöll ásamt því sem við bjóðum uppá sérsniðnar fjallaferðir í Alpana, til Grænlands eða á hvern þann tind sem hugur þinn girnist. Ef þú ert að leita að ógleymanlegri upplifun undir öruggri handleiðslu fagmanna eru Bergmenn til þjónustu eiðubúnir. Sjáumst á fjöllum. www.bergmenn.comwww.arcticheliskiing.comwww.ravenhilllodge.comwww.karlsa.com                                         

Aðrir (22)

Iceland Untouched Meistaravellir 11 107 Reykjavík 696-0171
Arctic Exposure Skemmuvegur 12 (blá gata) 200 Kópavogur 617-4550
Season Tours Fífuhjalli 19 200 Kópavogur 8634592
Guðmundur Jónasson ehf. Vesturvör 34 200 Kópavogur 5205200
Arctic Advanced Rjúpnasalir 10 201 Kópavogur 777-9966
Gistihúsið Neðra-Vatnshorn Línakradalur 531 Hvammstangi 8667297
Lifandi leiðsögn Skagfirðingabraut 35 550 Sauðárkrókur 899-3551
Lambagras ehf. Kárastígur 13 565 Hofsós 695-8533
Top Mountaineering Hverfisgata 18 580 Siglufjörður 8984939
TrollTravel.is Báta Dokkin 580 Siglufjörður 898-7180
Ferðafélag Akureyrar Strandgata 23 600 Akureyri 462-2720
Wide Open Aðalstræti 54a 600 Akureyri 659-3992
Trans - Atlantic Tryggvabraut 22 600 Akureyri 588-8900
Púkaferðir Norðurgata 37 600 Akureyri 659-4540
Arnarnes Paradís Arnarnes 604 Akureyri 894-5358
goHusky Glæsibær 604 Akureyri 898-9355
Alkemia Helgafell 606 Akureyri 847-4133
Arctic Nature Experience Smiðjuteigur 7 641 Húsavík 464-3940
Gistihúsið Staðarhóli Staðarhóll, Aðaldalur 641 Húsavík 464-3707
Gistiheimilið Eldá / Helluhraun / Birkihraun Helluhraun 15 660 Mývatn 464-4220
Askja - Mývatn Tours Arnarnes 660 Mývatn 8611920
Gistiheimilið Stöng Mývatnssveit 660 Mývatn 464-4252