Fara í efni

Í vetur og sumar verður hægt að ferðast með flugi frá Akureyri um allan heim. Breska flugfélagið easyJet hefur flug til Akureyrar í lok október og Icelandair býður upp á beint flug á Keflavíkurflugvöll þaðan sem hægt er að tengja við flugáætlun félagsins bæði til Bandaríkjanna og Evrópu. Edelweiss er með áætlunarflug yfir sumartíman til Zürich í Sviss ásamt því að leiguflug er á sama áfangastað yfir vetrartímann. Ferðaskrifstofan Verdi Travel selur flug bæði til Zürich og áfangastaði í Hollandi. Sjá flugáætlun hér neðar á síðunni.

VERDI Travel
VERDI ferðaskrifstofa varð til við samruna Ferðaskrifstofu Akureyrar og VITA Sport í janúar 2023. Við kappkostum að mæta óskum og þörfum viðskiptavina okkar og bjóðum þekkingu og áratuga reynslu starfsmanna í ferðaþjónustu. Við leitumst eftir því að þjónusta allt landið, hvort sem það eru ferðir frá Keflavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli eða Egilsstaðaflugvelli.  Sumarfríið, vetrarfríið, sportferðir, helgarferðir, hópaferðir, hvataferðir eða hvað sem er – við getum aðstoðað. Verð velkomin á skrifstofur okkar að Strandgötu 3 á Akureyri og Ármúla 11 (2. hæð) í Reykjavík.
easyJet
Eitt stærsta flugfélag Evrópu, easyJet, mun fljúga beint frá Gatwick í London til Akureyrar næsta vetur í áætlunarflugi. Flugfélagið hefur opnað fyrir bókanir, en fyrsta flugferðin verður 31. október. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum, út mars 2024. Skelltu þér til London á hagstæðu verði!
Edelweiss Air
Svissneska flugfélagið Edelweiss býður beint flug til Akureyrar frá Zurich, frá júní til ágúst 2024.
Akureyri - Icelandair
Icelandair flýgur reglulega á milli Reykjavíkur og Akureyrar frá Reykjavíkurflugvelli. Flugtíminn er aðeins 45 mínútur og því er innanlandsflug tilvalið fyrir þau sem vilja skjótast norður og skoða allt það góða sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Kjarnaskógur, Hlíðarfjall, Listagilið, Hof, Eyrin, Þelamörk og Sveitin eru allt dæmi um hrífandi staði svæðisins.  Frá 15. október til 30. nóvember verður boðið upp á beint flug, þrisvar sinnum í viku, á milli Akureyrar og Keflavíkur til að tengja við millilandaflug Icelandair um Keflavíkurflugvöll, en tímasetningarnar henta vel fyrir flug til Evrópu. Nánari upplýsingar um beint flug á milli Akureyrar og Keflavíkur má finna hér.  Frá Reykjavíkurflugvelli er einnig boðið upp á flug til Ísafjarðar, Egilsstaða, og yfir Verslunarmannahelgina er hægt að fljúga til Vestmannaeyja. 

Aðrir (13)

Air Canada Online booking -
Icelandair ehf. Reykjavík Airport 101 Reykjavík 505-0100
British Airways Online booking 101 Reykjavík -
Delta Online booking 101 Reykjavík -
Play Online booking 101 Reykjavík -
Lufthansa Online booking 101 Reykjavík -
airBaltic Online booking 101 Reykjavík -
AustrianAustrian Online booking 101 Reykjavík -
SAS Online booking 101 Reykjavík -
Neos Online booking 101 Reykjavík -
Wizz Air Online booking 101 Reykjavík -
Norwegian Oneline booking 101 Reykjavík -
Vueling Oneline booking 101 Reykjavík -

Flugáætlun

Með easyJet til London

Á undanförnum misserum hafa tækifærin til ferðalaga með flugi frá Akureyri aldrei verið fjölbreyttari. Síðasta vor tilkynnti easyJet um beint flug til Akureyrar í vetur, en félagið hefur flogið til Keflavíkur um árabil. Flogið verður frá Gatwick flugvellinum í London, en þaðan er hægt að taka tengiflug til að komast nánast hvert sem er í heiminum. Hægt er að kaupa flugferðir á heimasíðu easyJet og þar er hægt að bæta við tengiflugi með félaginu lengra út í heim. Einnig er hægt að nýta síður á borð við Dohop, til að kaupa tengiflug með öðrum flugfélögum.

Flogið er alla þriðjudaga og laugardaga, frá 31. október til 30. mars 2024.

Smelltu hér til þess að finna flug frá Akureyri
Smelltu hér til að kynna þér það sem London hefur upp á að bjóða.

© visitlondon.com/Antoine Buchet

 

Tengiflug til Keflavíkur með Icelandair

Icelandair tilkynnti í vor að boðið yrði upp á flugferðir á milli Akureyrar og Keflavíkur, í samhengi við flugáætlun félagsins frá Keflavík. Aðeins er hægt að nýta flugið ef flogið er áfram með Icelandair og þannig má því bóka flugferðir til allra áfangastaða Icelandair beint frá Akureyri og tilbaka. Markmiðið með tengifluginu er að auðvelda erlendum farþegum Icelandair að heimsækja Norðurland og sömuleiðis gefa innlendum farþegum þægilegri leið til að fljúga til erlendra áfangastaða. Breytingin felst einna helst í upplifun farþega, sem þurfa ekki að fara í öryggisleit í Keflavík eða koma farangri sjálfir áfram í tengiflugið. Ferlið miðast nú við að allt sé keypt á einum miða og Icelandair ber því ábyrgð á að koma farþegum og farangri á leiðarenda. Einnig verður áfram hægt að bóka flugmiða með Icelandair frá Akureyri til áfangastaða erlendis, þar sem flogið er með innanlandsflugi til Reykjavíkur og svo út í heim frá Keflavík. Tengiflugið verður í boði á tímabilinu 15. október til 30. nóvember 2023

Smelltu hér til að finna flug frá Akureyri.

 

Sumarflug Edelweiss heldur áfram á næsta ári

Í sumar flaug svissneska flugfélagið Edelweiss beint til Akureyrar frá Zurich. Árangurinn af þeim flugferðum var góður og nú þegar er hægt að panta ferðir til Zurich næsta sumar. Bóka þarf í gegnum heimasíðu Swiss: www.swiss.com/ch/en/homepage

 

Fljúga beint frá Amsterdam og Zurich til Akureyrar

Auk áætlunarflugs hafa tvær erlendar ferðaskrifstofur boðað komu sína til Akureyrar í vetur. Eftir jól mun Voigt Travel halda áfram með vetrarferðir frá Amsterdam. Þetta verður fjórði veturinn þar sem ferðaskrifstofan býður upp á ferðir til Norðurlands, en einnig hefur verið hægt að ferðast hingað með þeim á sumrin.

Svissneska ferðaskrifstofan Kontiki býður upp á ferðir til Norðurlands frá Zurich í febrúar og mars og því stefnir í að vetrartímabilið í ferðaþjónustu á Norðurlandi muni áfram njóta vaxtar í samræmi við áherslur ferðaþjónustu á Norðurlandi um að draga úr árstíðarsveiflu.

Í þessar flugferðir hafa Íslendingar getað bókað sér ferðir, til dæmis með Verdi travel, og á næstu vikum kemur í ljós hvernig framboðið á þeim verður. Verdi Travel setur einnig saman ferðir sem nýta bein flug bæði til einstaklinga og fyrir hópa. Smelltu hér til að skoða heimasíðu Verdi Travel.