Vegurinn var ruddur í upphaf 20. aldar, til að tengja bæina Aðalból í Austurárdal og Efri Núp í Núpsdal og gera bændunum og öðrum kleift að spila saman Lomber, á víxl á bæjunum. Lomber er spil af suður-evrópskum uppruna (L‘Hombre), og er hefðin til að spila Lomber ennþá lífandi í Húnaþingi vestra.
Leiði ljósmóðurinnar Skáld Rósu er í kirkjugarði Efra Núps, en hún lést þar á bænum árið 1855.
Hægt er að fara tvær leiðir.
Vegur 706 til Efra Núps,Lombervegur liggur rétt sunnan við bæinn í austurátt. Eða F 578 til Arnarvatns og þá liggur Lombervegurinn til vesturs áður en komið er að brú yfir Austurána við eyðibýlið Bjargarstaði. Leiðin er þægileg. Á einum stað þarf að príla yfir hlið. Vel sést til jökla í suðri og til Húnaflóa í norðri. Upplagt er að taka með sér spil í þessa göngu og setjast niður í skjóli stórra kletta þar sem veginn ber hæst og spila nokkra takta.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Malarstæði og grasflötur
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Engin salernisaðstaða eða ruslafötur.
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Malar- og moldarvegur
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.