Gangan um á Þrándarhlíðarfjall, sem liggur á milli Húnavatnssýslu og Skagafjarðar er töluvert erfið enda um þó nokkra hækkun að ræða. Hinsvegar er gengið eftir vegslóða sem gerir gönguna sjálfa ekki mjög erfiða. Útsýnið af fjalls toppnum er fallegt til allra átta.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Svartárdalsvegur nr 734 að slóða um Kiðaskarð. Eftir 6,7 km akstur kemur afleggjari útfrá slóða um Kiðaskarð upp á Þrándarhlíðarfjall.
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Engin salernisaðstaða eða ruslafötur.
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Gengið er eftir vegslóða.
Skilti er við upphaf vegslóða um Kiðaskarð en ekki við slóða að Þrándarhlíðarfjalli.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.