Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Árskógssandur Gönguleið

Þægileg ganga sem skiptist í tvo hluta þannig að auðvelt er að taka bara annan hlutann ef tíminn er naumur. Annars vegar er gengið norður með sjávarbakkanum og aftur til baka og hins vegar er genginn hringur umhverfis þorpið.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Dalvíkurbyggð
Upphafspunktur
Bílastæði fyrir ofan höfnina
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Blandað yfirborð
  • Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/arskogssandur
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þægileg göngu- og hjólaleið. Gangan hefst við bílastæðið fyrir ofan höfnina og þaðan haldið í norðurátt eftir vegarslóða sem liggur norður sjávarbakkann. Hrísey blasir við og útsýni út Eyjafjörðinn er fallegt á góðum degi. Sama leið er að mestu gengin til baka nema í lokin þá er farið eftir Ægisgötu að þorpinu og þá beygt til hægri upp Árskógssandsveg að gatnamótunum við Aðalbraut og farið eftir henni í átt að sjónum. Ægisgatan er svo gengin meðfram sjónum og á upphafsstað. Ef tími er naumur þá er hægt að láta sér nægja að ganga bara aðra hvora leiðina, þ.e. norður eftir sjávarbakkanum eða umhverfis þorpið.