Starf Markaðsstofu Norðurlands árið 2025
Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Stór þáttur í starfi Markaðsstofu Norðurland eru ferðasýningar og vinnustofur á lykilmörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Stærstu viðburðirnir eru Vestnorden, Mid Atlantic, World Travel Market í London og ITB í Berlín. Árið 2025 tók MN þátt í eftirfarandi viðburðum:
Stóri viðburður ársins var Vestnorden sem haldinn var á Akureyri. Metþátttaka var frá svæðinu eða um 30 norðlensk fyrirtæki sóttu sýninguna. Endurgjöf gesta á viðburðinum var með þeirri bestu sem sögur fara af. Sjá https://www.northiceland.is/is/mn/frettir/takk-fyrir-vestnorden-2025
Við héldum 2 vinnustofur í Bretlandi á tímabilinu.
Fyrri vinnnustofan var haldin í London og Manchester í gegnum samstarfsverkefnið Nature Direct.
Seinni vinnustofan var haldin í London og Brighton þar sem meðal annars einn jólasveinn úr Dimmuborgum leit við.
Vinna með Chris Hagan hélt áfram og var starfið með svipuðu sniði og árið áður með vinnustofum sem viðbót.
Árið 2025 voru tvær stórar ferðasýningar haldnar á Íslandi. Mid Atlantic var í byrjun árs og Vestnorden á Akureyri í lok árs sem bauð uppá einstakt tækifæri.
Vestnorden bauð upp á frábært tækifæri til þess að kynna áfangastaðinn. Dagana fyrir sýningu voru 2 kynnisferðir sem enduðu á Akureyri en þær byrjuðu austast og vestast á svæðinu.
Á meðan á sýningunni stóð var einnig boðið upp á kynnisferðir um Akureyri og í næsta nágrenni. Þessi eini viðburður skilað yfir 250 aðilum í kynnisferðir um svæðið.
MN tókum einnig á móti erlendum ferðaskrifstofum í samstarfi við Iceland Travel, Obeo Travel, Regent og Discover the World svo eitthvað sé nefnt ásamt því að heimsækja ferðaskrifstofur innanlands.



Sjálfbær ferðaþjónusta á Norðurlandi
Samstarfsvettvangur ferðamálafulltrúa
Sértækt markaðsverkefni á Norðurlandi vestra
Þingeyjarsveit - stöðugreining og aðgerðaáætlun
Samstarf með Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
MN á góðu samstarfi við Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. MN hefur komið að undirbúningi og framkvæmd menntamorgna Hæfnisetursins, sem haldnir eru nokkrum sinnum á ári. Einnig skipulagði MN tvo viðburði á Norðurlandi á vordögum í samvinnu við Hæfnisetur, símenntunarmiðstöðvar og samtök sveitarfélaga á Norðurlandi. Efni þessara viðburða var hagnýt fræðsla um stafræna markaðssetningu og hagnýtingu gervigreindar í ferðaþjónustu. Annar viðburðurinn var haldinn á Húsavík, en hinn á Sauðárkróki og voru báðir mjög vel sóttir.







Flugklasinn hefur tekið þátt ferðasýningum og vinnustofum eins og áður til að kynna nýjar flugleiðir. Mikil vinna hefur farið í að hvetja innlenda og erlenda ferðasöluaðila til þess að nýta nýja möguleika í flugi beint til Akureyrar. Áhugi á áfangastaðnum Akureyri og Norðurlandi fer vaxandi og mikil tækifæri framundan. Til þess að nýta þau tækifæri er mikilvægt að Norðurland, með Akureyrarflugvöll sem miðpunkt, verði órjúfanlegur hluti af almennri markaðssetningu Íslands á erlendum mörkuðum.
Starf Flugklasans snýst í auknum mæli um ýmis verkefni í samstarfi við þá aðila sem standa fyrir beinu flugi til Akureyrar, bæði flugfélög (áætlunarflug) og ferðaskrifstofur (leiguflug). Er það viðbót við vinnu við að koma á flugi frá nýjum áfangastöðum, sem einnig er í fullum gangi.
Barátta fyrir áframhaldandi fjármögnun á Flugklasanum og markaðssetningu Akureyrarflugvallar
Borðkortið gefið út í 80 þúsund eintökum
Samanbrjótanlega kortið gefið út í 50 þúsund eintökum
Kortum dreift um allan landshlutann
Samstarfsfyrirtæki geta sótt sér kort á upplýsingamiðstöðum og á skrifstofu MN
