Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ísland í essinu sínu – S marks the spot er markaðsverkefni sem miðar að því að efla ferðaþjónustu á svæðinu frá Hrútafirði og austur í Fljót. Þar mætast fjölbreytt landslag, heillandi söguslóðir og lifandi samfélög, með fjölmörgum tækifærum til upplifana og ævintýra.

Á svæðinu fara ævintýri og afþreying saman við ríkan menningararf og lifandi hefðir. Íslenski hesturinn er samofinn sögu þess og daglegu lífi, söguslóðir leynast við hvert fótmál og fjölbreytt afþreying gefur gestum færi á að kynnast landinu af eigin raun.

Víðáttan og fáfarnar slóðir gefa rými til að njóta og kanna á eigin hraða. Í þorpum og sveitum gefst tækifæri til að kynnast heimafólki og lífinu á svæðinu, og meðfram ströndinni tengir Norðurstrandarleið saman staði, sögur og upplifanir.

Verkefnið er samstarfsverkefni Markaðsstofu Norðurlands og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og er unnið í samráði við hagaðila á svæðinu. Með sameiginlegum áherslum, skýrum markaðsskilaboðum og nýju kynningarefni er stefnt að því að draga fram sérstöðu svæðisins, auka sýnileika þess og leggja grunn að öflugri markaðssókn til lengri tíma.

Aðdragandi og þróun verkefnisins

Verkefnið á rætur að rekja til ákalls Ferðamálasamtaka Norðurlands vestra um markaðsátak fyrir ferðaþjónustu í landshlutanum. Markaðsstofa Norðurlands og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hófu samstarf um verkefnið í lok maí 2025 og hefur það verið fjármagnað að hluta með stuðningi frá Sóknaráætlun Norðurlands vestra.

Undirbúningurinn byggði meðal annars á niðurstöðum stefnumótunarferlis SSNV. Út frá þeirri vinnu voru mótaðar áherslur á ævintýraferðamennsku, íslenska hestinn, sögu og menningu og tækifæri tengd Norðurstrandarleið. Þessar áherslur urðu grunnur að skilgreiningu markhópa og mótun markaðsskilaboða.

Samráð við ferðaþjónustuna

Sérstakur samráðshópur hefur tekið þátt í vinnunni, skipaður fulltrúum ferðamálafélaga á Norðurlandi vestra, Íslandsstofu og Háskóla Íslands á Hólum. Vorið 2026 var einnig send út vefkönnun til skráðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu til að kanna viðhorf þeirra til áherslna verkefnisins og framtíðarþróunar greinarinnar.

Niðurstöðurnar sýndu almennt stuðning við valdar áherslur og markaðsskilaboð. Flestir svarendur töldu sig þegar vinna með einhverjar áherslnanna og viðhorf til frekara samstarfs voru jákvæð.

Ísland í essinu sínu verður til

Ráðgjafar frá Instrument og Brandenburg voru fengnir til samstarfs við verkefnateymið um mörkun, orðfæri og framsetningu. Úr þeirri vinnu varð markaðsheitið Ísland í essinu sínu, með ensku yfirskriftinni S marks the spot.

Bókstafurinn S er einkennismerki verkefnisins og tengir saman heiti staða, upplifanir og sögur af svæðinu. Hann gefur jafnframt svigrúm til að leika sér með orð og skilaboð í kynningarefni á íslensku og ensku.

Kynning og framhald

Verkefnið var kynnt á opnum fundi á Blönduósi 12. október 2026. Um 60 manns sóttu fundinn og voru viðtökur jákvæðar. Framhaldið felst í samantekt markaðsefnis, efnissköpun og uppsetningu vefsvæðis með upplýsingum, myndefni og ferðatillögum. Efnið mun nýtast á miðlum Markaðsstofu Norðurlands, í samskiptum við ferðaskrifstofur og fjölmiðla og í kynningarstarfi sveitarfélaga og fyrirtækja á svæðinu. 

 Gögn og efni í tengslum við Ísland í essinu sínu