Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skráning í samstarf Norðurstrandarleiðar

Takk fyrir að sýna áhuga á því að gerast meðlimur í Norðurstrandarleið. Hér að neðan má sjá nánari upplýsingar um skilyrði og forsendur fyrir þátttöku. Vinsamlegast skoðaðu efnið vel og ef einhverjar spurningar vakna skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 462-3300. Athugaðu að grunnforsenda fyrir skráningu í Norðurstrandarleið er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð í samstarf við Markaðsstofu Norðurlands.

Allir skráðir meðlimir hafa rétt til þess að nota kennimerki Norðurstrandarleiðar / Arctic Coast Way í sinni markaðssetningu.

Meðlimir þurfa að greiða sérstakt þátttökugjald, sem ætlað er til að standa undir markaðssetningu.

Skráning í samstarf

STARFSEMI NORÐURSTRANDARLEIÐAR OG AÐILD

Viðmið og reglur varðandi aðild að Norðurstrandarleið og starfsemi, þjóna því hlutverki að tryggja að það sem við lofum gestum okkar standist gæðakröfur og staðfesti trúverðugleika vörumerkisins.

Norðurstrandarleið stendur fyrir ákveðin fyrirheit gagnvart gestum sem fara um þessa leið:

Norðurstrandarleið heillar gesti sína með tengingu við upprunalega, ósnortna og óspillta náttúru og á leiðinni sjá þeir fjölbreytt landslag milli fjalls og fjöru.
Hún tengir gesti við samfélög lítilla og friðsælla sjávarþorpa þar sem fólk hefur búið öldum saman og á sér sögu og menningu mótaða af nánd við hafið og heimskautsbauginn.
Gestum er komið á óvart með fjölbreytilegu og kyrrlátu andrúmslofti þessara staða, sem láta engan ferðalang ósnortinn. Fólk finnur orkustreymi umhverfisins og hrífst af töfrum birtunnar í margvíslegum tilbrigðum árið um kring.
Hér er hægt að njóta slökunar, varpa frá sér áhyggjum hversdagslífsins og eignast ógleymanlegar og einstakar minningar.

Þátttökuskilyrði

  • Meðlimir eru skráð fyrirtæki og eru aðilar í Markaðsstofu Norðurlands
  • Meðlimir hafa ótvíræð tengsl við norðurströnd Íslands
  • Meðlimir ábyrgjast samfelld samskipti (tölvupóstur og sími) allan ársins hring og stefna að því að fyrirtæki þeirra séu opin allt árið
  • Meðlimir vinna að aukinni sjálfbærni innan fyrirtækja sinna
  • Meðlimir sækja árlega vinnustofu Norðurstrandarleiðar til að skiptast á reynslusögum og bæta innri tengsl

    Landfræðileg staða
  • Staðsetning fyrirtækjanna styrkir upplifun gesta í tengslum við strandlengjuna og þau áhrif sem gestir finna fyrir vegna hennar.
  • Sjávarþorp er að finna víða á leiðinni
  • Fyrirtæki (gisti- og veitingastaðir, sýningar, viðburðir, o.fl.,) geta orðið meðlimir, ef þeir eru:
    - á skilgreindri leið Norðurstrandarleiðar
    - eða sjávarmegin við skilgreindar akstursleiðir
    - eða í nánd við skilgreinda leið (≤ 4km) og bjóða helst upp á útsýni til hafsins
  • Afþreyingar og upplifanir þurfa að vera á strandlengjunni eða á/í hafinu
  • Ferðaskipuleggjendur sem eru innan hins skilgreinda svæðis Norðurstrandarleiðar geta ekki orðið meðlimir ef þeir bjóða ekki upp á ferðir eða afþreyingu á strandlengjunni

Þjónusta og kostnaður


Fyrir verkefnið Norðurstrandarleið er nauðsynlegt að þróa sjálfbæra og sterka markaðssetningu til langs tíma, sem þjónar hagsmunum allra þeirra sem starfa undir vörumerkinu. Af þeirri ástæðu þurfa meðlimir að greiða fyrir kostnað við markaðssetningu. Hér að neðan má sjá verðskrá, sem birt er með fyrirvara um breytingar þar sem verkefnið er í stöðugri þróun og ýmsir þættir geta breyst, til dæmis fjöldi meðlima og aukin þörf fyrir markaðsefni. Upphæðunum verður að sjálfsögðu haldið í lágmarki og verkefnið er rekið án hagnaðar.
Hér má sjá árgjald fyrir þátttöku í Norðurstrandarleið. Gjaldið er greitt í fjórum hlutum jafnt yfir árið.

Stærð fyrirtækis Verð 2026 Greiðsla ársfjórðungslega
1-2 starfsmenn 28.365 7.091
3-4 starfsmenn 42.619 10.655
5-6 starfsmenn 78.253 19.563
7-10 starfsmenn 99.634 24.909
11+ starfsmenn 141.112 35.278

*Verðskrá uppfærist árlega. Miðað er við meðaltal ársbreytingar hvers mánaðar á vísitölu neysluverðs frá fyrra ári.

Ávinningur fyrir meðlimi

 

Með aðild að Norðurstrandarleið verður fyrirtækið hluti af sameiginlegu markaðsstarfi og fær aukinn sýnileika gagnvart ferðamönnum, fjölmiðlum og ferðaþjónustu.

Aðild felur meðal annars í sér:

  • umfjöllun á heimasíðu Norðurstrandarleiðar í viðeigandi flokki
  • birtingu á gagnvirku korti á heimasíðunni
  • rétt til að nota kennimerki Norðurstrandarleiðar í eigin markaðssetningu
  • þátttöku í sameiginlegu kynningarefni, kortum og söluefni
  • skráningu í söluhandbók sem nýtt er gagnvart erlendum ferðaskrifstofum
  • aðgang að myndefni og hugmyndum sem styðja við ímynd og vöruþróun
  • hlutdeild í fjölmiðlakynningu og kynningu á sölusýningum, svo sem Mannamótum, Mid-Atlantic og Vestnorden