Bakkafjörður Gönguleið
Stutt gönguleið umhverfis þorpið, að gömlu bryggjunni og útsýnisstað við sjóinn.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Langanesbyggð
Upphafspunktur
Bílastæði við gamla skólann
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/bakkafjordur
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gott er að hefja göngu við skólahúsið fyrrverandi og ganga þaðan eftir götunni Bæjarás og síðan í átt til sjávar að útsýnisstaðnum Hafnartanga við gömlu höfnina. Þar er gott útsýni út á Bakkaflóa og Gunnólfsvíkurfjall blasir við ef skyggni er gott. Frá höfninni er gengið út með þorpinu og beygt til hægri við síðustu íbúðarhúsin upp á vegarslóða og þaðan gengið meðfram fótboltavellinum og áfram fyrir ofan tjaldstæðið að upphafsreit.