Rétt sunnan við bæinn Sanda liggur vegslóð frá vegi 702. Hægt er að aka eftir slóðinni alveg niður að ströndinni en ekki er fært fyrir minnstu bílana. Þetta er þægileg ganga með sjávarloft í lungum, fuglakvak í eyrum og fallegt útsýni til Strandafjalla. Einn og einn selur gæti heilsað upp á göngufólkið.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Bílastæði er á afleggjara við skilti á vegi 702
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Ekki til staðar
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Gengið er meðfram æðarvarpi þannig að apríl til júní gæti verið varasamir til göngu þar og því mælt með að fjaran sé gengin til baka.
Undirlag sandfjara og malarstígur.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.