Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bæjarganga um Dalvík Gönguleið

Falleg hringleið um Dalvík, þægileg og auðveld ganga. Liggur meðfram sjónum en einnig eftir skógarstíg ofan við bæinn og býður á gott útsýni út fjörð og inn í dal.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Dalvíkurbyggð
Upphafspunktur
Berg menningarhús
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Gras
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/dalvik
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Best er leggja bílnum við menningarhúsið Berg eða við ráðhúsið. Þaðan er gengið til sjávar og niður stíg sem liggur skáhallt til suðurs niður hafnarbakkann. Þegar niður er komið er haldið til norðurs á milli fiskvinnslubygginganna og svo beygt til vinstri og haldið upp brekkuna eftir götunni Karlsrauðatorgi. Á gatnamótunum við Karlsbraut er beygt til suðurs og svo gengið upp stíg sem liggur í gegnum skemmtilegt útivistarsvæði sem ber nafnið Lágin. Stígurinn sveigir aðeins til suðurs áður en haldið er upp með leikskólanum að götunni Böggvisbraut. Þar liggur annar stígur til fjalls og er hann genginn en beygt til suðurs við fyrsta tækifæri og farið eftir honum að suðurenda bæjarins en þá er gengið niður götuna Skógarhóla og svo haldið inn á stíg sem liggur að sundlauginni og framhjá henni að Svarfaðarbraut. Þar er beygt til hægri og gengið meðfram tjaldsvæðinu. Hægt er að fara alveg að götunni Mímisvegi og ganga þar niður eða fara á göngustíg sem liggur meðfram skólabyggingunum og gervigrasvellinum. Þegar komið er niður á Skíðabraut er beygt til vinstri og haldið í norður að veitingahúsinu Gísla, Eiríki og Helga - þar má annað hvort halda áfram eftir Hafnarbrautinni eða fara til hægri eftir Grundargötu og svo til norðurs eftir Sandskeiði og inn á götuna Martröð. Leiðin hér heldur norður eftir Hafnarbraut og svo er beygt til hægri og farið niður brekkuna í átt að sjónum og gengið norður Martröð meðfram smábátahöfninni og að göngustígnum sem farinn var niður í upphafi.