Dimmuborgir eru einstakar hraunmyndanir sem mynduðust fyrir u.þ.b. 2300 árum. Hraunmyndanir eins og þessar er hvergi annarsstaðar að finna á jörðinni nema neðan sjávar við strendur Mexíkó. Afar góðar göngustígar og því hentar gangan öllum og er mjög gott hjólastólaaðgengi. Gönguleiðirnar eru 5 innan Dimmuborga.
Litli hringur: 570 m.
Stóri hringur: 750 m.
Kirkjuhringuri: 1,8 km.
Mellandahringur: 1,5 km.
Krókastígur: 890 m.
Bílastæði og vegnúmer að gönguleið.
Tvö stór og góð malbikuð bílastæði eru við Dimmuborgir. Vegnúmer 884.
Salerni, ruslafötur og drykkjarvatn.
Klósett er við bílastæði sem kostar 200 kr á. Klósettin eru þó einungis opin þegar Kaffi Borgir er opið og þar er hægt að fá drykkjarvatn (það er ekki opið alla vetrarmánuðina).
Athugasemdir vegna gönguleiðar.
Dimmuborgir eru friðlýst náttúruvætti þar sem gengið er um einstakar hraunmyndanir á heimsvísu. Ekki eru miklar hindarnir á styttri stígunum en á Krókastíg þarf að fara í gegnum gataklett sem krefst þess að maður geti gengið hálfboginn á óstöðugu undirlagi. Styttri gönguleiðum er reynt að moka á veturna og sanda eins og hægt er. Settar eru vetrarstikur á þessar styttri leiðir til þess að hægt sé að rata um. Aðeins erfiðara er að ganga um í snjónum á veturna, en þó er það ekki erfið ganga.
Vinsamlegast gangið ekki utan stíga og virðið gróður og dýralíf.