Grenivík Gönguleið
Þægileg og stutt ganga um þorpið; meðfram sjónum, upp að sumarhúsabyggðinni og aftur niður að sjó framhjá fótboltavelli Magna.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Grýtubakkahreppur
Upphafspunktur
Bílastæði við útgerðarminjasafn
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/grenivik
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst á bílastæðinu skammt frá Útgerðarminjasafninu sem staðsett er í fjöruborðinu. Þaðan er gengið norður eftir Ægissíðu þar til beygt er til vinstri og farið upp að sumarhúsabyggðinni eftir götunni Sunnuhvoli. Síðan er beygt til hægri á Sunnuhlíð og gengið í smá stund til suðurs þar til aftur er beygt til hægri og gengið niður á Hafnarveg. Haldið er áfram til suðurs eftir Hafnarvegi framhjá tjaldstæðinu og íþróttahúsinu og yfir Grenivíkurveg að Grenivíkurvelli. Þaðan liggur leiðin eftir gömlum götuslóða niður að sjó og að upphafsstað. Búið er að byggja upp fallega aðstöðu í kringum Útgerðarminjasafnið og vel þess virði að staldra við og njóta útsýnis út á fjörðinn, til dæmis með því að rölta út á Gömlu bryggju að umhverfislistaverkinu Sókn.