Hauganes Gönguleið
Skemmtileg og létt ganga umhverfis þorpið. Gott útsýni í allar áttir.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Dalvíkurbyggð
Upphafspunktur
Bílastæði við Höfnina
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
Hættur
- Engar hættur á leiðinni
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/hauganes
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst á bílastæðinu við höfnina, beint á móti Baccalá Bar. Þaðan er gengið beint eftir aðalgötunni til norðurs og áfram upp þar til komið er að skilti sem vísar á bæina Selá og Ás. Þar er beygt til vinstri og gengið beint til suðurs þar til komið er að stíg sem liggur niður að þorpinu. Þá er farið í gegnum tjaldstæðið að Fjöruböðunum og genginn stígurinn frá þeim og á upphafsstað. Á björtum og fallegum degi er þetta sannarlega fín útsýnisganga.