Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hrafnagil -Jólahús og Aldísarlundur Gönguleið

Gengið frá Jólahúsinu og inn í hverfið og þaðan upp að Aldísarlundi. Auðveld og aðgengileg leið. Einnig hægt að fara úr Aldísarlundi og upp að fossi en sú leið er aðeins erfiðari.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Eyjafjarðarsveit
Upphafspunktur
Jólahúsið, Hrafnagili
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
  • Blandað yfirborð
Hindranir
  • Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
  • Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Stígurinn upp að fossinum er nokkuð á fótinn og getur verið varasamur í blautu veðri og ef það er ísing
Hættur
Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Upphafsstaður er á bílaplaninu við Jólahúsið og þar er þjónusta allan ársins hring. Einnig er gengið framhjá sundlauginni og þar er hægt að fá þjónustu á opnunartíma. https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/hrafnagil
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Upphafsstaður er bílastæðið við Jólahúsið á Hrafnagili. Gengið er frá bílastæðinu, í gegnum garðinn og suður Hrafnagilshverfið. Við Laugartröð er beygt til hægri. Ofan við félagsheimilið er beygt til hægri eftir stíg sem liggur yfir litla á,  beygt til hægri upp tröppur eftir stíg sem liggur að Aldísarlundi. 
Aldísarlundur er lítil paradís fyrir ofan Hrafnagilshverfið og einnig útikennslustofa þar sem leikskóla - og grunnskólanemendur læra að umgangast náttúruna.  Gengið er í gegnum Aldísarlund til norðurs að trébrú, þar heyrist vel í fossinum sem er þar fyrir ofan. Fyrir gönguglaða er gaman að halda áfram upp tröppur til hægri við brúna og beygja til vinstri upp stíginn sem liggur upp brekkuna meðfram árgilinu og að klettanös þar sem útsýni að fossinum er gott. Sýna þarf varúð og aðgætni því lausamölin í stígnum getur verið hál og varast ber að fara of nálægt brúninni. Sama leið er gengin til baka, farið yfir brúna og í gegnum Aldísarlund, áður en haldið er niður er gaman að ganga að bekk sem er sunnar á gönguleiðinni og þaðan er gott útsýni yfir sveitina austan megin. Frá bekknum er gengið til baka og beygt til hægri niður stíg þar til komið er aftur að brúnni yfir ánna og eftir það er gengið beint af augum í austurátt að grunnskólanum á Hrafnagili, gengið er til norðurs fyrir neðan sundlaugina og síðan beygt til vinstri í gegnum bílastæðið við tjaldstæðið og upp á götuna í gegnum hverfið. Haldið eftir henni til norðurs að Jólahúsinu þar sem göngunni lýkur.