Laugar í Reykjadal Gönguleið
Stutt og þægileg ganga frá sundlauginni norður að Stóru Laugum og til baka í gegnum hverfið fyrir ofan Laugaskóla.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Þingeyjarsveit
Upphafspunktur
Bílastæði við sundlaug
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Gras
- Möl
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Engar hættur á leiðinni
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/laugar
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst við sundlaugina. Frá bílastæðinu er gengið norður veginn að Stóru-Laugum. Vegurinn liggur meðfram ánni og útsýni yfir grösugan Reykjadalinn til norðurs er gott. Á Stóru- Laugum er tekin lítill hringur í kringum húsaþyrpinguna áður en komið er niður á veginn aftur og gengið til baka í átt að skólahverfinu. Áður en komið er inn í hverfið er beygt upp til vinstri og svo gengið í gegnum hverfið suður fyrir tjörnina en þar er aftur beygt upp til vinstri og farið eftir stíg sem liggur í skeifu í kringum lítinn trjálund. Gengið niður eftir veginum og farið norður fyrir íþróttahúsið, meðfram tjörninni og aftur að bílastæðinu. Þægileg ganga og gaman að virða fyrir sér virðulegan húsakost framhaldsskólans á Laugum og njóta útsýnisins yfir hina gróðusælu og grösugu sveit sem Reykjadalurinn er.