Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Norðurstrandarhringur við Mývatn Gönguleið

Fjölbreytt stikuð hringleið í gegnum hraunið meðfram vatninu. Frábært útsýni og mikið fuglalíf, ekki síst í byrjun sumars.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Þingeyjarsveit
Upphafspunktur
Bílastæði við Beryja hótelið
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Hraun
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Gæta þarf varúðar í hrauninu, sprungur og gjótur geta verið varasamar.
Hættur
  • Sprungur - Djúp glufa eða brot í bergi eða í jarðvegi sem er á hreyfingu
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Tjaldsvæði
  • Sorplosun
Margvísleg þjónusta er í Reykjahlíð. https://www.visitmyvatn.is/is
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hægt er að hefja göngu frá bílaplaninu við Berjaya hótel og ganga yfir veginn að vatninu en þar er skilti sem vísar á leiðina sem er stikuð alla leið. Gengið er meðfram vatnsbakkanum til vesturs í 1 - 1,5 klst en þá beygir leiðin þvert yfir hraunið og yfir þjóðveginn. Þar er gengið upp lyngivaxna brekku áður en beygt er til austurs og haldið til baka í átt að þorpinu. Sú leið liggur að mestu eftir gömlum akvegi. Þetta er skemmtileg leið í fjölbreyttu landslagi en gæta þarf varúðar í hrauninu þar sem geta leynst gjótur og sprungur. Góð hugmynd að taka með sér nesti og njóta þess að hlusta á fugla og virða fyrir sér fagurt útsýnið.