Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bæjarganga á Ólafsfirði Gönguleið

Þægileg hringleið um Ólafsfjörð sem hefst við íþróttahúsið. Hægt er að lengja gönguna og fara út á sandinn vestan megin við bæinn. Þá er farið yfir brúna og beygt til hægri og gengið í fjöruni út á ströndina.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Fjallabyggð
Upphafspunktur
Bílastæðið við íþróttamiðstöðina
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
Hættur
  • Engar hættur á leiðinni
  • Umferð bíla
  • Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/olafsfjordur
Lýsing
Upplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst á bílastæðinu við íþróttahúsið, sundlaugina og tjaldstæðið. Farið í átt að tjaldstæðinu og genginn stígurinn fyrir ofan tjörnina þar sem oft er töluvert fuglalíf. Á vegg félagsheimilisins er áhugaverð ljósmyndasýning frá því þegar mikil aurskriða féll á bæinn í ágúst 1988. Þegar búið er að skoða sýninguna er haldið áfram norður eftir aðalgötunni og beygt til vinstri við kaffihús Klöru og gengið sem leið liggur í átt til sjávar. Síðan er gengið meðfram sjónum í suðvesturrátt. Hægt er að príla upp á sjávarkambinn og fá þá gott útsýni yfir sandfjöruna handan ár. Ef tími er nægur er hægt að fara yfir brúna og beygja strax til hægri og ganga eftir fjörunni út á sandinn. En annars er haldið áfram eftir götunni Ægisbyggð, þorpið út á enda þar sem er gott útsýni og svo haldið upp að Menntaskólanum á Tröllaskaga og þaðan aftur á upphafsstað.