Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Frá fjöru og upp á Ásinn á Raufarhöfn Gönguleið

Gengið er frá sundlauginni/tjaldstæðinu og meðfram sjávarsíðunni í gegnum eldri hluta þorpsins og út á bryggjuna áður en haldið er upp á ásinn og gengið eftir honum suður fyrir þorpið og þaðan aftur á upphafsstað.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Skólahús/íþróttahús
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
  • Gras
  • Þýft
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
  • Tjaldsvæði
  • Sorplosun
  • Salerni
Á Raufarhöfn er ýmis þjónusta fyrir ferðamenn - https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/raufarhofn
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Ganga hefst við skólann eða tjaldstæðið og þaðan er gengið að fjörunni þar sem vitinn á Höfðanum blasir vel við. Mikið fuglalíf er oft í flæðarmálinu. Gengið er meðfram sjávarsíðunni og inni í þorpið í átt að bryggjunni. Hafa ber þó í huga að bryggjan er virkt vinnusvæði og því þarf að sýna aðgát þegar vinnutæki eru á ferð. Frá bryggjunni er haldið í gegnum þorpið upp á svokallaðan Ás, öðru nafni Nónás en það er lágur ás sem stendur rétt ofan og vestan við þorpið. Á leiðinni upp á ásinni (í gegnum frisbí golf svæðið) blasir Heimsskautsgerðið vel við og þegar upp er komið er fallegt útsýni yfir þorpið. Gönguleiðin liggur nokkuð framarlega á ásnum yfir nokkuð þýft og grösugt landslag sem getur verið seinfarið, síðan er sveigt til hægri inn á vegaslóða sem liggur nálægt svo kölluðum Bretastöngum en það eru fjarskiptamöstur sem breski herinn setti upp á Raufarhöfn um 1940. Þeir sem vilja sleppa við þýfið geta gengið eftir vegaslóðinni alla leið en þá þarf að fara ögn lengra inn á heiðina þegar upp á Ásinn er komið í upphafi. Við það tapast útsýni yfir þorpið allt þar til haldið er niður aftur en gangan verður mun léttari. Þegar niður er komið er genginn stuttur spölur eftir þjóðveginum og svo beygt til hægri inn í íbúðarhverfið og aftur að upphafsstað. Ef fólk hefur ekki mikinn tíma er hægt að ganga aðalgötuna til baka að skólanum í stað þess að fara upp á Ásinn.