Siglufjörður - Hvanneyrarskál Gönguleið
Útsýnisganga eftir snjóflóðavarnargörðunum og upp í Hvanneyrarskál sem liggur í um 200 m hæð. Margar skemmtilegar sögur frá síldarárunum tengjast skálinni og hittingi elskenda þar.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Fjallabyggð
Upphafspunktur
Ágætt að hefja göngu á bílastæðum í miðbænum
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
Salerni
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/siglufjordur
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst í miðbæ Siglufjarðar þar sem víða er hægt að finna góð bílastæði. Byrjað er að ganga í gegnum bæinn til norðurs og þá beygt til vinstri upp að sjúkrahúsinu og gengið aðeins til norður eftir stíg sem er fyrir neðan sjúkrahúsið. Aftur er beygt til vinstri og gengið upp götuna að gömlu rafstöðinni þar sem gengið er til suðurs eftir snjóflóðavarnargarði. Við enda þessa garðs er útsýnisstaður og bekkur þar sem hægt er að tylla sér og njóta útsýnis yfir bæinn. Til þess að halda áfram og upp í Hvanneyrarskál þarf að fara lítillega til baka og beygja niður stíg sem liggur í sveigju upp að fjallshlíðinni. Fara þarf í gegnum hlið þar sem er skilti sem vísar á Grillhyttan. Gangan í skálina er aðeins á fótinn en stígurinn er breiður og góður. Þegar upp í skálina er komið er hægt að halda áfram eftir kindagötu sem liggur að litlum fossi og þaðan er svo hægt að ganga niður að fyrr nefndri Grillhytta en þar er hægt að setjast niður og borða nesti og jafnvel grilla ef stemmingin er þannig. Gestabók er í hyttunni. Mikilvægt er að ganga vel um og loka vel á eftir sér. Sama leið er gengin niður á varnargarðinn og svo haldið áfram til suðurs að enda garðsins og gengið þar niður á aðalgötuna inn í bæinn og hringnum lokað.